10 atriði sem fara illa með nýrun þín

Færst hefur í aukana að fólk eigi við heilsukvilla að stríða vegna nýrna sinna. Ástæða þess er að fólk hefur vanið sig á óheilbrigðan lífstíl og eru hér nokkur atriði sem fara illa með nýrun:

Sjá einnig: Salt og blóðþrýstingur

6359290462765097671087193641_Kidney-picture-

Sjá einnig: Hver eru einkenni vítamíneitrunar?

1. Mikið magn af próteini í fæðunni

Próteinríkt fæði er hollt, en að borða mikið af fæði sem inniheldur mikið magn af próteini og borðar mikiði af rauðu kjöti, getur þú verið að skaða lifrina þína.

2. Reykingar

Reykingar eru slæmar fyrir hvert eitt og einasta líffæri líkamans, þar með talið nýrun.

3. Of mikið salt

Eitt af hlutverkum nýrnanna er að vinna úr kalíum. Kalíum fæst úr salti og þegar þú borðar of mikið salt, getur þú skemmt starfsemi nýrna þinna.

4. Of mikil notkun á verkjalyfjum

Of mikil notkun á verkjalyfjum getur skemmt mörg líffæri. Of mikil notkun sumra verkjalyfja getur minnkað blóðflæði og getur það haft slæm áhrif á nýrun.

5. Of mikið koffín

Að drekka mikið magn af drykkjum sem innihalda mikið koffín getur aukið blóðþýsting þinn. Aukinn blóðþrýstingur getur leitt til nýrnaskemmdar.

6. Að hunsa veikindi

Að hvíla sig ekki þegar þú ert með kvef eða flensu getur leitt til nýrnasýkingar.

Sjá einnig: Litur á þvagi er besti mælikvarðinn

7. Mikið magn af alkóhóli

Ef þú drekkur mikið af áfengi, skemmir þú nýrun þín, vegna þess að alkóhól inniheldur eiturefni.

8. Svefnleysi

Þegar við sofum, gefum við líkamanum færi á að endurnýja vefi og ef við vanrækjum svefn okkar geta nýrun ekki endurnýjað sig.

9. Vökvaskortur

Að drekka ekki nógu mikið vatn er eitt af aðalástæðunum sem nýru skemmast. Vökvaskortur veldur því að nýrun geta ekki hreinsað líkamann og getur leitt til þess að eiturefni fara út í blóð þitt.

10. Að halda í þér of lengi

Ef þú heldur í þér þvagi of lengi, getur það leitt til nýrnabilunar og jafnvel til blóðskilunar.

Heimildir: womendailymagazine

SHARE