5. des – Jóladagatal Hún.is

Nú fer að líða að jólum og þá komumst við á Hún.is í gjafagírinn. Seinustu tvö ár höfum við verið með jóladagatal 1.- 24. desember og ætlum að halda því áfram. Í dag ætlum við að gefa gjöf frá Heimkaup, en það er bókin Veislan endalausa Læknirinn í eldhúsinu eftir Ragnar Frey Ingvarsson

Læknirinn í eldhúsinu býður aftur til veislu! Gómsætur matur, munúð og ljúf nautn, samvera með fjölskyldu og vinum, veisla fyrir bragðlaukana, augu og eyru og hug og hjarta. 

Screen Shot 2014-12-05 at 10.00.13
Heimkaup er nýtt vöruhús með vefverslun, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Á vefsíðunni þeirra finnurðu allar þær vörur sem til eru á lager hverju sinni, en úrvalið er mikið og úr ýmsum vöruflokkum.

Þegar keypt er á Heimkaup.is getur viðskiptavinurinn valið um hvort hann fær vöruna senda heim að dyrum á aðeins 90 mínútum, 5 klukkustundum eða með kvöldsendingu – á höfuðborgarsvæðinu, eða 1–2 virkum dögum með póstinum hvar sem er á landinu.

Það eina sem þú þarft að gera er að setja athugasemd hér fyrir neðan: „Veislan endalausa“ og þú ert komin í pottinn. Drögum út í kvöld!

SHARE