6 hollar fæðutegundir sem fara illa með tennurnar

Það er augljóst að gosdrykkir, brjóstsykur, orkudrykkir og fleira sem er afar hátt í sykri skemmir tennurnar.

En þessar hollu fæðutegundir geta einnig gert tönnunum illt, kom mér örlítið á óvart.

Sítrus ávextir

a

C-vítamín í appelsínum skiptir miklu máli þegar kemur að því að halda kollageninu í gómnum í góðu standi, en að borða of mikið af sítrus ávöxtum getur einnig skemmt fallegt bros.

“Ef þú ert alltaf að borða appelsínur eða drekka vatn með sítrónum í, þá getur þú verið að mýkja og skemma glerungin á tönnunum”. Segir Jablow. Og glerungur vex ekki aftur.

Sítrónur og Lime eru sérstaklega slæm, eins eru safar búnir til úr sítrus ávöxtum. Þeir eru afar háir í sykri. Ein staðreynd úr rannsókn sem birt var í British Journal of Nurtition, greipávaxta safi er næstum jafn hár í sykri og kók.

Hvað skal gera: Eftir að hafa borðað sítrus ávexti eða drukkið appelsínudjús skaltu drekka stórt glas af vatni og skola munninn í leiðinni með vatni. Eftir 20 mínútur er í lagi að bursta tennurnar. Þetta má ekki liggja of lengi á tönnum því þá er glerungurinn í hættu. Og alls ekki bursta beint eftir að hafa drukkið slíkan safa eða borðað sítrus ávexti, þá ertu að skemma glerunginn.

Möndlur

a

Flestir eru kreisí í möndlur, þær eru fullar af E-vítamínum og troð fullar af hollu fitunni sem okkur líkar vel og þær fylla magann vel.

En þegar kemur að tannheilsunni að þá er þetta ekkert til að brosa að. “Möndlur eru afar harðar undir tönn” segir Jablow. “Ef þú passar þig ekki og bítur fast niður á möndlu þá gætir þú brotið út úr tönn”.

Hvað skal gera:  Ekki endilega kaupa poka með heilum möndlum, grípu poka með möndlum í bitum eða sneiðum.

a

Þurrkaðir ávextir

Þurrkaðir ávextir eru orðnir afar vinsælir sem millimál hjá mörgum. En þú mættir hugsa þig tvisvar um áður en þú ferð að raða í þig rúsínum.  Þar sem allt vatn hefur verið kreist úr þeim að þá eru þurrkaðir ávextir fullir af sykri og þeir eiga það til að festast á tönnunum. Þegar það gerist, þá er hætta á bakteríusýkingum, sérstaklega ef að þú ert ekki dugleg að bursta tennurnar.

Hvað skal gera: Borðaðu þurrkaða ávexti heima við. Skolaðu munninn með vatni eftir að þú hefur borðað þurrkaða ávexti og 20 mínútum seinna, bursta þá tennurnar.

Kaffi

f

Það er mikið magn af andoxunarefnum í kaffi, en kaffi skilur líka eftir bletti á tönnum. Þessir blettir draga að sér bakteríur.

Hvað skal gera: Það þarf ekkert að drekka heilan helling á hverjum morgni til að fá þessa bletti. Það þarf bara tvo til þrjá bolla á dag. Ef þú getur ekki sleppt kaffi, prufaðu ískaffi og drekktu það í gegnum rör.

Hnetusmjör

a

Það er ekkert eins gott eins og full skeið af hnetusmjöri, en því miður að þá getur hnetusmjör fest sig við tennurnar og þar af leiðandi ertu í hættu á að fá skemmdir.

Hvað skal gera: Reyndu að finna hnetusmjör sem hefur engan viðbættan sykur.

Heimild: womashealthmag.com

heilsutorg

Fleiri skemmtilegar greinar um heilsu á Heilsutorg.is  

SHARE