61 árs hjónabandi fagnað með myndatöku í anda UP – Myndir

Nina og Gramps hafa verið gift í 61 ár, en þrátt fyrir það er það eina sem þau eiga frá giftingardeginum bara ein ljósmynd. Á einum af mikilvægasta degi lífs þeirra mætti ljósmyndarinn ekki. Barnabarn þeirra Lauren Wells sem er atburðastjórnandi ákvað að bæta úr því og skipulagði einstaklega fallega afmælismyndatöku undir áhrifum frá Pixar teiknimyndinni “Up”.

Lauren bað Cambria Grace, Pop & Circumstance and Wild Folk Studio að hjálpa sér við að skapa einstaka gjöf handa hjónunum. Á myndunum sem teknar eru á bryggju halda þau á litríkum blöðrum, blómvöndum, ferðatöskum og gömlum bókum, uppsetningin og staðsetningin líkir ekki aðeins eftir kvikmyndinni, heldur er jafnframt tákn  um það langa og fallega ferðalag sem þau hafa átt saman. Lauren segir að þau hafi aldrei tekið hringana niður og séu jafnframt mjög góðir vinir.

Eftir 61 árs hjónaband fengu hjónin loksins myndatöku sem þau eiga skilið. Myndirnar voru hin fullkomna jólagjöf handa þeim, þar sem að þau fengu ekki að sjá þær fyrr en á jóladag.

SHARE