7 matarsamsetningar sem bæta heilsuna

Það er ekki nóg að vita hvaða næringarefni eru í matnum heldur þarf líka að kunna að blanda þeim saman.

Það er ekki nóg að vera meðvitaður um hvaða næringarefni eru í matnum sem maður er að borða, heldur er líka gott að vita hvernig þessi næringarefni nýtast best. Þá getur bæði skipt máli hvernig maturinn er matreiddur og samsettur. Það er nefnilega ekki alltaf tilviljun að hefðir hafi myndast fyrir því að ákveðnar tegundir matvæla eða hráefna eru borðuð saman. Oft er ástæðan sú að þegar matvælin eru borðuð saman þá auka þau upptöku næringarefna hvors annars.
 
Ólífuolía og tómar
Flestir kannast við að nota þetta tvennt saman, að sjálfsögðu oft með fjölda annarra hráefna. En það að bæta olíu í hóflegu magni á hráefni sem inniheldur karótín eykur upptöku þess. Flestir hugsa kannski um gulrætur þegar minnst er á karótín, en tómatar eru ríkir af andoxunarefninu lýkópen, sem tilheyrir karótíni, en það er talið hafa góð áhrif á ónæmiskerfið og geti jafnvel varnað gegn vexti krabbameinsfruma.

 

Turmerik og svartur pipar
Curcumin sem er virka efnið í túrmerik sem talið er hafa bólgueyðandi eiginleika. Gallinn er hins vegar sá að líkamann tekur mjög lítið upp af efninu sé túrmeriks neytt eins og sér. Það er hins vegar talið að svartur pipar auki upptöku curcumins og því eru þessi tvö krydd gjarnan notuð samhliða.

 

Belgbaunir og blómkál
Þetta grænmeti er oft notað saman, ásamt mörgu öðru. En belgbaunir eru ríkar af járni sem er sérstaklega mikilvægt fyrir fólk sem aðhyllist plöntumiðað fæði, eins og þeir sem eru vegan. Blómkálið er hins vegar ríkt af C-vítamíni sem eykur upptöku járns í líkamanum.

 

Sjá einnig: 10 fjölskyldur með stórfurðulegar matarvenjur

Lax og sýrður rjómi
Laxinn er eitt af þeim fáu matvælum sem inniheldur D-vítamín frá náttúrunnar hendi. D-vítamínið er nauðsynlegt fyrir upptöku kalsíums úr fæðunni, en það er hægt að fá úr mjólkurvörum, til að mynda sýrðum rjóma. Vinsælt er að nota sýrðan rjóma í kaldar sósur með laxi, en þá er nóg að bæta við sýrðum rjóma og kryddi.

 

Mjólk og hunang
Það er kannski ekki mjög íslenskt að fá sér flóaða mjólk og hunang fyrir svefninn, en það er engu að síður góð blanda. Mjólkin inniheldur ákveðnar amínósýrur sem framleiða bæði seratónín og melatónín í heilanum. Kolvetni sem hunangið er ríkt af, eykur upptöku þessara amínósýra.

 

Grænt te og sítrónur
Grænt te er mjög ríkt af andoxunarefnum og með því að blanda því saman við sítrónur þá eykst magnið sem líkaminn tekur upp.

 

Bananar og jógúrt
Jógúrtin er, eins og aðrar mjólkurvörur, rík uppspretta kalsíums sem er nauðsynlegt fyrir bein, tennur og vöðva. Rannsóknir hafa sýnt fram á að matur ríkur af kalsíum sem blandað er saman við mat ríkan af inúlíni, eykur upptöku þess síðarnefnda.

 

Heimildir: Fréttatíminn

SHARE