Af hverju fær fólk bólur?

Ein tegund kirtla í húðinni eru fitukirtlar. Í langflestum tilvikum er hver þeirra tengdur einum hársekk. Þann hluta fitukirtils sem seytir húðfitu er að finna í leðurhúðinni og opnast hann inn í hársekkinn (þann hluta sem lítur út eins og flöskuháls), eða beint út á yfirborð húðarinnar.
Húðfitan sem fitukirtlar seyta er olíukennd. Húðfitan kemur í veg fyrir að hár ofþorni og hindrar að uppgufun vatns úr húðinni verði of mikil. Einnig heldur hún húðinni mjúkri og heldur aftur af vexti sumra baktería.

Sjá einnig: Þarftu að losna við bólur?

Þegar fitukirtlar í andliti stækka vegna uppsafnaðrar húðfitu myndast fílapenslar. Þar sem sumar bakteríur nærast á húðfitu geta fílapenslar orðið að bólum og jafnvel kýlum. Hinn svarti litur fílapenslanna stafar af húðlitarefninu melaníni og oxaðri olíu, en ekki óhreinindum eins og margir telja.

Grein þessi birtist fyrst á Vísindavef HÍ
Á kynþroskaskeiðinu stækka fitukirtlar og starfsemi þeirra eykst. Í sumum tilfellum bólgna þeir ef ástandið er slæmt og er þá talað um að unglingurinn sé með gelgjubólur eðaunglingabólur (e. acne). Í slæmum tilfellum getur verið nauðsynlegt að leita til húðlæknis sem mælir stundum með sýklalyfjakúr.

Í grein á doktor.is, þar sem fjallað er mun ítarlegar um unglingabólur, er að finna upptalningu á nokkrum ráðum til að halda bólum í skefjum. Þau eru eftirfarandi:

  • Ekki nudda húðina, eða skrúbba hana, það eykur hættuna á að húðin versni.
  • Þvo hárið reglulega með sjampói og varast að það sé mikið í snertingu við andlitið.
  • Vara sig á að meðhöndla bólurnar of mikið og alls ekki kreista þær. Það skilur eftir sig ör.
  • Vara sig á miklum kulda, hita og sólarbirtu. Sólarbirta getur haft góð áhrif á bólurnar tímabundið en heldur þeim ekki alveg niðri. Þar að auki valda of miklir sólargeislar húðskaða og jafnvel krabbameini.
  • Nota rakakrem, sólarvörn og snyrtivörur sem innihalda ekki mikla fitu og stífla þar með ekki svitaholur húðarinnar (non-comedogen).
  • Engar vísindalegar sannanir eru fyrir því að ákveðnar fæðutegundir valdi bólum. Ef viss fæðutegund veldur bólumyndun hvað eftir annað, til dæmis tómatar, rækjur, súkkulaði eða ostur er best að láta hana eiga sig.
  • Borða hollt og fjölbreytt fæði, drekka mikið vatn og hreyfa þig reglulega. Almenn vellíðan eykur vellíðan í húðinni
  • Hægt er að leita leiðbeininga varðandi umhirðu húðarinnar hjá snyrtisérfræðingi, en því fylgja útgjöld.
  • Hreinsivörur sem keyptar eru án lyfseðils bera yfirleitt ekki árangur fyrr en eftir 6-8 vikna notkun.

 

Fleiri heilsutengdar greinar eru á doktor.is logo

SHARE