Áráttu- og þráhyggjuröskun

Margir kannast við það hjá sjálfum sér að vera varkár, t.d. ganga úr skugga um hvort rafmagnstæki séu aftengd á kvöldin, hvort nokkuð hafi gleymst að læsa útihurðinni o.s.frv. Þeir sem þjást af áráttu- og þráhyggjuröskun eru hins vegar helteknir af slíkum ótta og hann hefur stöðugt áhrif á líf þeirra. Þeir þurfa að kanna hvort ljósin séu slökkt mörgum sinnum á kvöldi eða þvo sér um hendur 100 sinnum á dag, eftir hverja snertingu við fólk eða hluti. Þráhyggjan veldur því að sömu hugsanir leita aftur og aftur upp í hugann, valda óþægindum, kvíða, sektarkennd eða jafnvel skömm. Áráttan er svo þörf til að gera eitthvað aftur og aftur, stundum til að létta á þráhyggjutilfinningunni.

ocd

Sjá einnig: 25 atriði sem pirra vin þinn með áráttu- og þráhyggjuröskun

Dæmi

Síendurteknar hugsanir sækja á sjúklinginn og hann ræður ekki við þær, t.d. að hann sé þakinn sýklum.

Sjúklingur bregst við með því að framkvæma stöðugt ákveðna hegðun, t.d. vera margar klukkustundir í baði.

Algengustu þráhyggjuhugsanirnar eru

Ótti við smit og óhreinindi

Hugsun um hvað sé rétt, hvort maður hafi gert rétt

Hugsanir um að eitthvað sé ógeðslegt við mann

Hugsanir um reglu og skipulag

Hugsun um dauða eða veikindi

Hugsanir um að ráðast á og skaða

Kynferðislegar hugsanir

Sjá einnig: Hver er algengasta áráttuhegðunin?

Algengasta áráttuhegðunin er

Að athuga eitthvað í sífellu, t.d. rafmagn eða læsingu

Að þvo og hreinsa

Að spyrja sömu hluta í sífellu eða segja það sama aftur og aftur

Að raða hlutum stanslaust í röð

Að safna og byrgja sig upp af einhverju

Þunglyndi og aðrir geðrænir sjúkdómar geta fylgt áráttu- og þráhyggjuröskun.

Orsakir sjúkdómsins

Ástæður þess að menn veikjast eru ekki kunnar þó að tilhneiging til erfðafylgni hafi komið í ljós. Áráttu- og þráhyggjuröskun kann m.a. að stafa af skorti á boðefnum í heilanum, aðallega serótóníni. Hins vegar skipta umhverfisþættir líka miklu máli.

Meðferð

Um tvenns konar meðferð er að ræða, lyfjameðferð og samtalsmeðferð.

Lyfjameðferð: Meðal lyfja sem gefið hafa góða raun gegn þessari röskun er ákveðin  gerð þunglyndislyfja.

Samtalsmeðferð: Hugræn atferlismeðferð hefur gefið góða raun gegn áráttu- og þráhyggjuröskun. Þetta er ekki sálgreining þar sem orsaka er leitað í fortíð heldur reyna menn að skilja hegðun sína með því að kanna hugsanir, viðbrögð og atferli. Þetta er t.d. gert með því að skrifa þessar ósjálfráðu hugsanir niður og átta sig á þeim.

Fleiri heilsutengdar greinar má finna á

doktor.is logo

SHARE