Brasilískt vax: „Úps! Þarna fór píkan á mér!”

Ekki að ég vilji gerast óþægilega persónuleg frammi fyrir alþjóð. En almáttugur. Hvað það er sárt að fara í bikinívax! Að ekki sé talað um brasilískt. Mîn spurning er þessi; getur verið að einhverjar konur gangi gegnum ferlið á bekknum án þess að reka upp öskur? Eru einhverjar ofurhetjur til, þegar að bikinívaxinu kemur?

Sjá einnig: Strákar prófa brazilískt vax á eigin skinni í allra fyrsta sinn

Hvað með það brasilíska? Hvað hugsa aðrar konur en ég þegar þær leggjast á bekkinn? Eru allar konur hugrakkar inni hjá snyrtifræðingum? Æpa þær eins og ég geri, klemma rasskinnar saman (er ég farin að gerast of persónuleg?) eða láta þær bara vaða í fullkomnu hugrekki, smella í góm og þegja meðan á öllu ferlinu stendur?

Sjá einnig: Að vera kona – Hvað á maður að kalla píkuna á sér?

Finnst nokkurri konu notarlegt að fara í brasilískt? Getur staðist að nokkur kona fari sársauaklaust í gegnum þá eldskírn sem brasilískt vax er? Hvað hugsa konur eiginlega á bekknum í miðjum klíðuum – meðan snyrtifræðingurinn hitar vaxið, … og rífur svo dýrðina af?

SHARE