Brauð með parmaskinku, cheddar osti og graslauk

Þetta góða brauð er frá Lólý.is. Æðislega gott!

Brauð með parmaskinku, cheddar osti og graslauk

425 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
100 gr rifinn cheddar ostur
50 gr rifinn parmesan ostur
6 sneiðar parmaskinka rifinn í litla bita
graslaukur (1 góð lúka skorinn í lita bita)
1 tsk sinnepsduft(má sleppa)
200 ml vatn
smá svartur pipar

Forhitið ofninn í 200°C.
Setjið saman í skál öll þurrefnin en takið til hliðar smá lúku af cheddarostinum. Blandið þessu vel saman. Bætið vatninu saman við þangað til að þið eruð komin með klístrað deig, stundum þarf aðeins meira vatn, kannski nær 225 ml. Hnoðið deigið vel saman en það gæti tekið nokkrar mínútur. Takið síðan deigið og myndið kúlu úr því, setjið á ofnplötuna og skerið þrjá skurði þvert ofan á brauðið og dreifið afganginum af ostinum yfir.
Það er mjög gott að taka úðabrúsa og úða vatni inn í ofninn svona eins og 10 sinnum. Setjið svo brauðið inn í ofninn og bakið í 35 mínútur.
Takið það út úr ofninum og gerið heiðarlega tilraun til að láta það kólna aðeins en það er bara aðeins of girnilegt til að bíða enda er það langbest sjóðandi heitt með smjöri þannig að það bráðnar inn í það.

Skellið endilega like-i á Lólý

SHARE