Britney Spears með tælandi undirfatalínu á markað

Britney Spears situr varla auðum höndum þessa dagana, en dívan tilkynnti nýverið á Twitter að væntanleg undirfatalína færi á markað frá henni í september og íslenskum konum eflaust til ómældrar ánægju verður ekki einungis hægt að líta dýrðina augum á netinu heldur verður línan einnig fáanleg gegnum póstþjónustu.

Línan, sem fer á markað þann 9 september og verður fáanleg í verslunum í New York, mun innihalda allt frá undirfatasettum til korseletta og náttfata og undirkjóla. Þá verður úrval stærða ekki af verri endanum, en Britney hyggst markaðsetja línuna fyrir konur í öllum stærðarflokkum – brjóstahaldarar verða fáanlegir í skálum A til J og nærbuxur verða fáanlegar frá stærð 0 til 28.

 Allar konur ættu að eiga kost á því að finnast þær kynþokkafullar og fallegar ásýndum óháð því hverju þær klæðast – en mín sýn á The Intimate Britney Spears er að setja undirfatnað á markað sem er allt í senn; kynþokkafullur, vandaður og þægilegur. 

 

 Hægt verður að bera dýrðina augum gegnum vefsíðurnar intimatebritneyspears.com og barenecessities.com en línan kemur á opinberan markað í upphafi september. Og við bíðum spenntar …. 

SHARE