Brjóstahaldari sem stækkar brjóstin: E Bra

Hannaður hefur verið sérstakur brjóstahaldari sem sagður er stækka brjóst kvenna. Hann er með innbyggðum titrara og hannaður af serbneska verkfræðingnum Milan Milic. Titrandi brjóstahaldarinn hefur hlotið nafnið E Bra og er nú loksins kominn í framleiðslu til reynslu fyrir konur í Bandaríkjunum, en áður hafði haldarinn aðeins verið prófaður í Evrópu.

Milan ákvað að hanna E Bra eftir að kona hans kvartaði undan því að brjóst hennar væru of lítil og vildi hann finna upp aðra lausn fyrir hana en skurðaðgerð til að stækka á henni brjóstin. Titringurinn á að geta séð til þess að brjóstin stækki um allt að eina skálastærð á einni viku og mun hann bæði stinna þau og færa þau nær hvort öðru.

Sjá einnig: Af hverju síga brjóstin á þér? Má tefja þau á leið sinni að nærbuxunum?

Þær konur sem hafa prófað brjóstahaldarann segjast vera himinlifandi með árangurinn og segja að sjálfstraust þeirra hafi aukist til muna við að fá þrýstnari barm.

Sjá einnig: 5 brjóstahaldara mistök og hvað er til ráða?

2BF16C4600000578-0-image-a-10_1441301676991

Verkfræðingur: Milan ásamt konu sinni og uppfinningu.

2BF16C3D00000578-0-image-a-17_1441302728033

Ellen DeGeneres hefur prófað keimlíka uppfinningu frá Kína, sem er þó ekki eins í sniðum:

2BF16C5A00000578-0-image-a-16_1441302723451

2BF16C3500000578-0-image-a-15_1441302697422

2BF16C5200000578-0-image-a-12_1441301865955

2BF16C5600000578-0-image-a-13_1441301912525

2BF1710200000578-0-image-a-14_1441301920974

2BF16C6200000578-0-image-a-11_1441301862546

SHARE