Dans og hlátur besta meðalið

Kona nokkur frá Texas, Ana-Alecia Ayala, er með sjaldgæfa tegund sarkmeins hefur sannað það að hún lætur ekki einu sinni banvænan sjúkdóm berja sig niður. Hún birti þetta myndband af sjálfri sér og Danielle Andrus, sem er líka í lyfjameðferð á sama spítala, Baylor Cancer Hospital í Dallas. „Hver segir svo að krabbamein og lyfjameðferð eigi að draga þig niður. Við ætlum að eiga síðasta orðið,“ skrifaði Ana á Facebook. „Við viljum sýna heiminum að dans og hlátur er BESTA meðalið.“

 

[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/anaalecia.fernandez/videos/10157734313320151/”]

„Við viljum hvetja fólk í okkar stöðu til að sjá krabbameinið ekki sem þunglyndislegan og dapurlegan dauðadóm,“ sagði Ana á FOX 4. „Við viljum líka hvetja sjúklinga/fólk/aðstandendur/umönnunaraðila til að fara út fyrir þægindarhringinn sinn og dansa í gegnum sársaukann! Hlátur hefur verið besta meðalið fyrir mig!“

 

SHARE