Dásamlega gott rúsínuspeltbrauð

Hérna fáum við dýrðlega brauðuppskrift af blogginu hennar Tinnu BjargarBrauðið er í hollari kantinum og er gerlaust. Eins inniheldur það spelt í stað hveitis. Að sögn Tinnu minnir það á kanilbeyglur – ó, við sláum ekki höndinni á móti því!

Hægt er að fylgjast með blogginu hennar Tinnu á Facebook og hvet ég ykkur eindregið til þess.

Sjá einnig: Hveiti- og sykurlaust bananabrauð

IMG_1722

Rúsínuspeltbrauð

1 bolli fræ (til dæmis fimmkornablanda)

3 bollar spelt

1/2 bolli kókosmjöl

1/2 bolli rúsínur

2 tsk kanill

2 tsk lyftiduft

1 tsk salt

2 bollar AB mjólk

  • Setjið þurrefni í skál og bætið AB mjólk síðast saman við. Hnoðið saman í hrærivél og setjið í smurt brauðform.
  • Bakið við 180° í 40 mínútur.
  • Takið brauðið strax úr formunum og látið kólna á grind.

Sjá einnig: Kaldhefað hunangsbrauð í ofnskúffu

SHARE