DIY – Breyttu gamalli hurð í fallegt fatahengi

Mary Jane heldur úti dásamlegri síðu sem hún kallar photogmommie.com en síðuna hennar má sjá HÉR. Þar er hún að skapa fallega hluti tengda myndum enda er hún með myndavélina uppi öllum stundum og reynir að kenna öðrum mæðrum að mynda börnin sín.

Hún er einnig snillingur í að gera fallega hluti t.d eins og að breyta gamalli, franskri hurð í fallegt forstofuhengi.  Ef þú ert að leita þér að verkefni heima fyrir til að gera fallegt í kringum þig án þess að þú farir á hausinn og þarft að flikka upp á fatahengið, þá er þetta verðugt verkefni fyrir þig.  Hér er eldri hurð breytt í fallegan myndaramma og fatahengi í senn.

Það er sem þig vantar í þetta verkefni er auðvita hurð, helst svona „franska“ með römmum inn í sjálfri hurðinni.  Uppáhalds myndirnar þínar og svo auðvitað flotta snaga til að hengja upp yfirhafnir.

 

 

 

1

Hurðin góða sem Mary Jane fann fyrir sitt heimili.

 

2

 

 

Hér er búið að vinna upp hurðina og verið að raða upp myndum.

 

3

Gott er að merkja myndirnar og vísa hvernig þær snúa.

 

5

 

 

6-sama-med-5-i-texta

 

Gott er að nota málningarlímband til að festa myndirnar ef þú skyldir þurfa að laga þær til, þær skemmast ekki.

7

Hurðin sómir sér líka vel sem bara myndarammi.

 

9

 

Ótrúlega töff fatahengi komið upp og setur skemmtilegan svip á forstofuna. 

Anna Birgis tók saman fyrir Heilsutorg

heilsutorg

 

 

SHARE