Drykkur dagsins er með jarðarberjum og banönum

Oft gefur maður sér ekki tíma til að borða ávexti yfir daginn en þumalputtareglan er sú að maður eigi að borða 5 ávexti á hverjum degi. Ég reyni mitt besta en yfirleitt næ ég varla 1 ávöxt á dag, því miður.

Ég var staðráðin í því að bæta úr þessari döpru neyslu minni á ávöxtum og hafði verið að hugsa um þetta í nokkra daga. Á þessum dögum rakst ég á þessa drykki í verslun. Þvílíka snilldin! Ég keypti mér nokkra svona drykki og ákvað að drekka allavega einn á dag í viku. Bara til að prófa.

Sjá einnig: Drykkur dagsins er með mangó og ástaraldinum

Ég fann það strax á fyrsta degi að ég var að gera góða hluti. Þvílík orka og vellíðan! Mig vantaði greinilega einhver vítamín í kroppinn á mér því á degi 3 vaknaði ég með einhverskonar tilhlökkun í drykkinn sem beið mín inni í ísskáp. Núna get ég ekki startað deginum án þess að fá mér einn svona ávaxta smoothie eða eitt glas af djúsnum.

Þessa vikuna ætlum við að hafa Innocent viku.

Einn drykkur á dag sem ég ætla að sýna ykkur og segja ykkur frá.

Drykkur dagsins í dag er

50f70c5fb68c108c21df694225e11763c4e5fbf7

 

Þessi drykkur getur bara ekki klikkað. Hann er rauður eins og jarðaberin og sætur eins og banani. Ein svona 250 ml flaska kemur í staðinn fyrir 2 ávexti af þeim 5 sem maður á að borða yfir daginn.  Í einni svona flösku er blandað saman jarðarberjum, banana, vínberjum, epli, lime og appelsínu og útkoman er dásamleg. Ein svona flaska gefur manni fullt af c vítamínum og passar í flestar handtöskur svo hægt er að grípa hana með á leiðinni út af heimilinu.

Innihald:

Screen Shot 2015-07-01 at 3.19.50 PM

Hálft pressað epli  –      1/2 banani  –       safi úr 9 vínberjum

Screen Shot 2015-07-01 at 3.20.00 PM

Smá skvetta af lime  –  Safi úr 1/3 appelsínu  –  4 1/2 kramið jarðarber

Við ætlum að gefa heppnum lesanda eina 6 stk pakkningu af þessum safa. Vertu með, með því að skrifa hér fyrir neðan hver er þinn uppáhaldsávöxtur?

SHARE