Dunkin Donuts í Kringluna

Starfsfólk Dunkin´ Donuts á Laugavegi.

Kaffihúsakeðjan Dunkin´ Donuts opnar sitt annað kaffihús á Íslandi í október næstkomandi og verður það staðsett á fyrstu hæð í Kringlunni.

Mynd 1
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi og Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi, er ánægður með staðsetninguna og segir það eðlilega þróun mála að annað kaffihúsið hér á landi verði í verslunarmiðstöðinni. „Viðskiptavinir Kringlunnar eru fjölmargir daglega og það er ánægjulegt að geta boðið þeim upp á frekara úrval af góðum veitingum á viðráðanlegu verði. Við verðum með hraða og góða þjónustu og sama vöruúrval og á kaffihúsinu okkar á Laugavegi. Því verður hægt að setjast niður í rólegheitunum eða grípa með sér til dæmis kjúklingavefju, beyglu með laxi og rjómaosti og svo að sjálfsögðu hágæða kaffi og kaffidrykki. Þeir sem eru í þeim gírnum að leyfa sér smá sætindi geta skellt sér á einn kleinuhring, nú eða kassa og leyft öðrum að njóta með sér“, segir Árni.

 

 

 

Gert er ráð fyrir að ráða þurfi í kringum 10 manns fyrir opnunina og eftir að þeim ráðningum lýkur eru um 30 manns í vinnu hjá Dunkin´ Donuts á Íslandi. Árni Pétur segir að virkilega vel hafi tekist til í ráðningarmálunum til þessa og að mikill áhugi sé fyrir því að starfa á kaffihúsum keðjunnar, en til stendur að staðirnir verði orðnir 16 talsins eftir fimm ár.

 

„Það er óhætt að segja að mikið hafi mætt á starfsfólkinu til þessa enda viðtökurnar við fyrsta staðnum á Laugavegi verið vonum framar. Við erum með harðduglegt fólk í vinnu, sem hefur fengið góða þjálfun en við trúum því að þjálfunin skili sér til viðskiptavina okkar með glaðlegri og öruggri þjónustu”, segir hann.

 

Starfsfólk Dunkin´ Donuts á Laugavegi.
Starfsfólk Dunkin´ Donuts á Laugavegi.

 

Yfir 180 verslanir, veitingastaðir og þjónustuaðilar eru í Kringlunni en verslunarmiðstöðin er sú stærsta í Reykjavík. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, fagnar því að samningar hafi náðst um komu Dunkin´ Donuts þangað inn.

„Við trúum því að þessi viðbót eigi eftir að leggjast vel í viðskiptavini okkar enda er Dunkin´ Donuts sterkt vörumerki sem virðist vera mikill áhugi fyrir hjá landsmönnum. Við viljum bjóða viðskiptavinum Kringlunnar upp á val þegar kemur að verslun, veitingum og þjónustu og þetta er einn liðurinn í því“, segir Sigurjón.

 

Um Dunkin’ Donuts

Dunkin’ Donuts var stofnað árið 1950 og hefur síðan þá verið einn af uppáhalds stöðum Bandaríkjamanna til að næla sér í hágæða kaffi og bakkelsi.

Beygla með Caprí salati og ískaffi.
Beygla með Caprí salati og ískaffi.

Fyrirtækið er leiðandi á markaði í heitum og köldum kaffidrykkjum, kleinuhringjum, beyglum og möffins og hefur níu ár í röð náð fyrsta sæti í flokki kaffifyrirtækja hjá Brand Keys þegar kemur að hollustu við viðskiptavini sína.

Mynd 4
Latte og íslatte

Veitingastaðir Dunkin´ Donuts eru í dag rúmlega 11.300 talsins í um 40 löndum víða um heim. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Canton, Massachusetts og er Dunkin’ Donuts hluti af Dunkin’ Brands Group, Inc. (Nasdaq: DNKN).

 

 

 

SHARE