Einfalt og ljúffengt mexíkóskt lasagne

Lasagne er gott. Svo ótrúlegt gott. Í öllum útgáfum. Þessi mexíkóska útgáfa er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þessi uppskrift er einkar einföld í framkvæmd og útkoman er alveg stórkostlega ljúffeng.

Sjá einnig: Lasagne með beikoni og sólþurrkuðum tómötum

IMG_4300

Mexíkókst lasagne

4 kjúklingabringur

olía

salt

svartur pipar

1 bréf tacokrydd

2 rauðar paprikur

2 laukar

3 hvítlauksrif

600 ml matreiðslurjómi

2 krukkur salsasósa

8 meðalstórar tortillakökur

400 gr rifinn ostur

1 dós sýrður rjómi

1 poki Doritos

Sjá einnig: Dýrindis grænmetislasagna

  • Skerið kjúklingabringur í litla bita og steikið á pönnu með smá olíu. Kryddið með salti, svörtum pipar og tacokryddi.
  • Þegar kjúklingabitarnir eru gegnsteiktir, setjið þá í stóran pott. Skerið papriku, lauk og hvítlauk í litla bita og steikið í stutta stund þar til grænmetið fer að mýkjast.
  • Blandið því svo saman við kjúklingabitana í pottinum ásamt matreiðslurjóma og salsasósu.
  • Hitið að suðu og látið krauma við vægan hita í 10 mínútur.
  • Ausið 1/3 af kjúklingasósu í botninn á stóru eldföstu móti og setjið 4 tortillakökur ofan á. Til að þær passi í mótið og nái að þekja kjúklinginn þarf að skera þær til.
  • Setjið aftur 1/3 af kjúklingasósu jafnt yfir tortillakökurnar og leggið aðrar 4 kökur yfir.
  • Því næst er afganginum af sósunni ausið yfir tortillakökurnar og rifnum osti að lokum sáldrað yfir.
    Bakið í ofni við 200° í 20-25 mínútur eða þar til osturinn bráðnar og verður svolítið stökkur.
  • Berið fram með sýrðum rjóma, Doritosflögum og ef til vill smá guacamole.
  • Uppskriftin passar í stórt eldfast mót en ef þið eigið ekki til stórt þá þarf að minnka hana um 1/3.
SHARE