Enn fleira sem styður þá sögu að Bruce Jenner er á leið í kynleiðréttingu

Seinustu mánuði, eða eftir að Bruce Jenner og Kris Jenner skildu, hefur sú saga verið í gangi um það að Bruce sé á leið í kynleiðréttingu. Fyrst fór Bruce (64) að láta minnka á sér Adamseplið en hann hefur þótt breytast mikið í útliti á seinustu misserum. Einnig var sagt frá því í slúðurtímaritum að Bruce væri búinn að velja sér kvenmannsnafnið Bridget. 

Það nýjasta er svo að Bruce Jenner sé farinn að raka á sér fótleggina en þessi mynd var tekin af honum í Los Angeles í vikunni. Þeir sem sáu Bruce sögðu að hann hefði verið einstaklega kvenlegur að sjá þarna fyrir utan Starbucks við Malibu ströndina og verið  með glansandi fína fótleggi.

 

bruce-jenner-shaves-legs-excl-coleman-rayner-lead

Hvað haldið þið kæru lesendur? Er Bruce á leiðinni í kynleiðréttingu eða ekki?

SHARE