Eþíópískur veitingastaður sem þú verður að prófa

Fyrir stuttu snæddi ég á eþíópíska veitingastaðnum Teni, sem staðsettur er á Skúlagötu. Teni er alveg stórmerkilegt fyrirbæri. Stórkostlegt fyrirbæri eiginlega. Andrúmsloftið, stemningin, ilmurinn, bragðið – ég gæti vel hugsað mér að borða þarna á hverjum degi. Maturinn er dálítið öðruvísi og alveg einstaklega góður. Bragðlaukarnir taka dýfu og tvöfalda skrúfu bara við tilhugsunina. Mmm.

IMG_2057

IMG_2058

IMG_2060

IMG_2061

Þessi unaðslega upplifun hófst á forrétt. Sem var djúpsteikt grænmeti með dýrðlegri sósu. Allt sem er djúpsteikt fær hjarta mitt til þess að slá talsvert hraðar þannig að mögulega er ég ekki marktæk þegar um slík matvæli er að ræða. En þetta var gott, ó svo gott. Stökkt, sterkt og stórfínt.

IMG_2066

IMG_2069

Svo var það aðalrétturinn. Eða aðalréttirnir réttara sagt. Blanda af fimm réttum, takk. Dugir ekkert minna. Maturinn er borinn fram með pönnukökum. Sem nota á til þess að skófla upp í sig. Engin hnífapör. Neibb. Algjör óþarfi.

IMG_2078

Bragðið, ó bragðið. Þarna voru allskonar galdrar að eiga sér stað. Hvítlaukur, engifer, rósmarín, chilli – nefndu það. Bragðlaukarnir dönsuðu. Það var fjólublátt ljós við barinn. Svo gott sem.

IMG_2070

IMG_2073

IMG_2082

IMG_2088

Sjóðandi heit og ilmandi þvottastykki að lokinni máltíð. Ferlega notalegt og sparaði manni ferð á salernið.

IMG_2091

Ég ætla að leyfa mér að mæla með Teni. Alveg eindregið. Þetta var ótrúlega skemmtileg upplifun. Og alveg ægilega bragðgóð. Verðið skemmir heldur svo sannarlega ekki fyrir, sem er stór plús.

SHARE