Faðir tekur myndir af dóttur sinni og er sakaður um barnaníð

Í apríl 2014 fór ljósmyndarinn Wyatt Neumann í tveggja vikna ferð með dóttir sinni, Stella.

Í ferðinn tók Wyatt fullt af myndum af litlu dúllunni sinni, á mörgum stöðum og á sumum myndunum var hún í fötum og stundum var hún ekki í fötum.

Hann birti myndir af stúlkunni á Instagram og innan skamms var búið að loka Instagram aðgangi Wyatt og einnig aðgangi hans á Facebook. Hann var kallaður öfuguggi og viðbjóðsleg mannvera af mörgum á netinu. Í kjölfarið ákvað Wyatt að gera ljósmyndasýningu sem ber nafnið „I Feel Sorry for Your Children: Sakleysið gert kynferðislegt í Bandaríkjunum“, en Wyatt sjálfur lítur á myndir sínar sem list og sitt eigið tjáningarfrelsi.

Markmið hans með sýningunni er að vekja upp umræður um tjáningarfrelsi og það, hvernig samfélagið hefur tilhneigingu til að gera eðlilega hluti sem börn gera, að einhverju kynferðislegu.

Horfið á myndbandið til þess að sjá fleiri myndir

 

Hvað finnst ykkur kæru lesendur? Eru þetta bara venjulegar myndir af 2 ára stúlku eða er þetta eitthvað óeðlilegt?

Screen Shot 2014-09-12 at 10.45.16 AM

Screen Shot 2014-09-12 at 10.44.41 AM

SHARE