Fallegar myndir frá Seoul Fashion Week

Myndir frá París, New York, London og Milanó eru alltaf áberandi í kringum tískuvikurnar og keppast stærstu tímaritin um að vera fyrst með fréttir og myndir af staðnum. Hér í Evrópu fer kannski minna fyrir fréttum af tískuvikum í Asíu en þær eru meira en þess virði að skoða og fylgjast með. MAC cosmetics sá um förðun á hluta af sýningunum á tískuvikunni í Seuol, og birtu þau þessar fallegu baksviðs myndir á tumblr síðu sinni.

Myndirnar eru frá sýningum Mag & Logan, Steve J & Yoni P og Kaal E.Suktae.

SHARE