Fann íkorna í áburðarpoka

Það er ekki á hverjum degi sem ungviðið finnst  í áburðarpokum en maður nokkur, sem kallar sig Nadtacular, fann nokkra daga gamlan íkorna í poka fullum af lífrænum áburði. Í fyrstu vissi Nadtacular ekki hvaða tegund dýrið sem hann hélt á  væri og taldi það vera mús eða jafnvel rottu og ákvað Nad að koma því til heilsu og bæta þessum litla unga við fjölskylduna.

Dýrið braggaðist vel og fljótlega kom í ljós að um íkorna væri að ræða og hændist íkornin mjög að Nad.

Þeir eru hinir mestu mátar og af myndunum að dæma verður þessi vinátta vonandi langlíf og falleg.


 

Heimild

SHARE