Fasteign á flottum stað með glæsilegum palli

Þessi flotta eign er 64,2 fermetrar í Laufrima í Grafarvogi og er tveggja herbergja. Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð og komið er inn í flísalagða forstofu með góðu skápaplássi.

4237d3b4e433e8268680721f980bb692-large.jpg

Þegar inn úr forstofu er komið tekur við gangur sem tengir saman þvottahús á hægri hönd, bað á þá vinstri, hergbergi, stofu og eldhús. 

cd16146ee97fd34d8d12d36810913958-large.jpg

Herbergið er rúmgott, bjart og vel skápum búið, parket á gólfi. Eldhús er búið vandaðri innréttingu og tækjum ásamt góðum borðkrók.  

Stofan er björt en úr henni er gengt út á sér suðurpall sem er auðvitað dásamlegt á sólríkum sumardögum.

601b1b74c511453695c9cb5cce514c3f-large.jpg

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, klósett, vaskur og baðkar. Þvottahúsið sem er innan eignar er einnig góð geymsla. 

b4185c973b313b69abee52c2eecf7fc2-large.jpg

Opin bílageymsla fylgir eigninni.

Sjáið allar myndir hér: 

Upplýsingar veitir Héðinn B. Ásbjörnsson öggiltur fasteignasali sími 8484806 og netfang hedinn@fastborg.is.  Hringdu eða sendu honum tölvupóst og fáðu frítt söluverðmat á eignina þína.

SHARE