Finnst Tristan vera að vanvirða Khloe

Kim Kardashian er brjáluð út í Tristan Thompson fyrir að vera að eyða tíma með annarri konu, á sama tíma og Khloe er að fara að eignast barnið þeirra.

Kim er mjög reið út í Tristan þar sem hann var úti á lífinu með annarri konu þegar kærastan hans, Khloe, er komin að því að eiga. „Henni finnst þetta algjör vanvirðing við systur sína,“ segir heimildarmaður Hollywoodlife. „Hún veit að þetta er versti hugsanlegi tíminn fyrir Khloe að takast á við svona leiðindi og það hefur slæm áhrif á hana og barnið sem hún gengur með.“

Khloe og Tristan hafa verið par síðan árið 2016 og hafa virst mjög hamingjusöm saman, alveg þangað til framhjáhaldssögur fóru á kreik um Tristan. Birst hafa myndir og myndbönd af honum með öðrum konum en hvorki hann né Khloe hafa tjáð sig um það opinberlega.

SHARE