Fjólublátt hár!

Fyrir eiginlega akkúrat ári þá litaði ég part af hárinu mínu fjólublátt. Liturinn átti að endast í nokkra mánuði, en hárið mitt tekur svo vel við lit að hann ætlaði bara ekkert að fara. Fjólubláa ævintýrið endaði í febrúar seinasta þegar ég klippti af stóran hluta af hárinu mínu. Ég veit ekki hvað það er en alltaf þegar fer að kólna og dimma langar mig að gera eitthvað við hárið á mér.

Ég er búin að ákveða það núna að lita hárið á mér aftur fjólublátt! Seinast þegar ég gerði það þá hafði ég ekki hugmynd um hvað ég væri að gera og útkoman var ágæt en ekki eins og ég ætlaði upprunalega. Núna veit ég nokkurn veginn hvernig á að gera þetta.

Ég er búin að vera skoða smá inspiration á Pinterest og mig langar helst að aflita á mér hárið og lita það allt núna! En ég er svo léleg að halda hlutum við að það yrði rosalega ljótt eftir nokkrar vikur. Hárið á mér þarf helst að vera rosalega low maintenance.

sal1

sal2

Kanski ég ætti bara að klippa meirihlutann af hárinu mínu af??

sal3

Ef ég  vissi að hárið á mér myndi enda svona þá myndi ég algjörlega klippa það og aflita. Spurning samt hvort ég gæti pullað það jafn vel og þessi?

sal4

sal5

 Markmiðið er allavega að ná því tiltölulega pastel fjólubláu og þar sem ljósi parturinn af hárinu mínu er kominn neðar (hárið búið að síkka) þá ætla ég að gera hann HVÍTANN og síðan fjólubláann! Ef það er einhvertíman réttur tími til þess að lita hárið á sér fjólublátt þá er það þegar maður er ennþá ung! Síðan ef ég nenni ekki að vera með þetta lengur þá bara choppa ég af mér hárið!
Hár er bara hár og það vex aftur!
Höfundur:
salóme
SHARE