Fór með 11 ára gömul börn í hjálpartækjaverslun

Kennari nokkur við barnaskólann Gaia Democratic School í Minneapolis fór með 11 ára gamla nemendur sína í vettvangsferð. Og vakti meint vettvangsferð mikla reiði á meðal foreldra þeirra nemenda sem í ferðina fóru. En kennarinn bauð þeim upp á ferð í verslunina Smitten Kitten – sem sérhæfir sig í hjálpartækjum ástarlífsins, jú og ýmsu öðru sem því fylgir.

Sjá einnig: Hjálpartæki ástarlífsins – Þetta vissir þú ekki! – Myndir

Að sögn foreldra brást kennarinn trausti þeirra:

Svona nokkuð verður ekki aftur tekið. Þetta á eftir að sitja í börnunum að eilífu.

Hafa foreldrar farið fram á það við skólastjórnendur að kennaranum verði vikið úr starfi. En stjórnendur skólans eru ekki á sama máli:

Við sjáum ekkert athugavert við þessa ferð. Þarna gátu börnin séð að kynlíf er ekkert til þess að blygðast sín fyrir.

Sjá einnig: Miley Cyrus hneykslar með hjálpartæki ástarlífsins

 

SHARE