Fyrrverandi klámstjarnan Jenna Jameson handtekin

Fyrrverandi klámstjarnan Jenna Jameson virðist ekki alveg vera hætt að koma sér í vandræði. Hún hefur áður verið handtekin fyrir að aka undir áhrifum en nú síðast var hún handtekin fyrir að ráðast á manneskju.

Þetta var sama kvöld og hún ætlaði að halda upp á afmælið sitt. Jenna var á leið að mæta í afmælisveisluna sína þegar hún lenti í rifrildi við aðra manneskju sem endaði í slagsmálum. Jenna var síðan handtekin og missti því af afmælisveislu sinni.

Ef við lítum á Instagram síðu hennar og mannsins hennar Tito Ortiz, grunar okkur að ekki sé allt með felldu í sambandinu. Þau hafa áður átt í erfiðleikum og það gæti verið að Jenna sé eitthvað illa stödd andlega þessa dagana. Vonandi voru þetta bara mistök hjá stelpugreyinu.

Hún ætti frekar að vera að einbeita sér að sonum sínum tveimur.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here