Glæsileg íbúð í Hraunbæ – Aukaherbergi í kjallara sem hægt er að leigja út

Þessi einstaklega fallega 125 fermetrar, 5 herbergja íbúð er á efstu hæð í góðu fjölbýli í Hraunbænum.

hr18

 

Eignin, sem er á þriðju hæð er sérlega björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð en að auki er 20 fermetra unglinga-/leiguherbergi í kjallara sem er mjög gott.

 

hr4

Komið er inn í parketlagt hol/gang með góðu skápaplássi. Holið/gangurinn tengir saman stofu, eldhús og svefnherbergjagang.

hr2

 

Eldhúsið er búið vönduðum innréttingum og góðum eldhúskrók, flísar á gólfi. Í eldhúsinnréttingu er gert ráð fyrir uppþvottavél og þvottavél.

hr8

Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Hægt er að stækka stofuna enn frekar, en búið er að stúka af hluta hennar og útbúa gott herbergi. Hjónaherbergið er í góðri stærð og bjart parket á gólfi.  Góð skápainnrétting er á vegg yfir hjónarúminu.

hr9
Barnaherbergin eru 3, öll eru þau í góðri stærð, parket er á gólfum. Baðherbergið er búið baðkari, flísar á gólfi og upp á veggi.

hr15

 

Sjáðu allar myndirnar hér fyrir neðan:

Allar upplýsingar um eignina veita Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@fastborg.is eða  Héðinn B Ásbjörnsson lögg. fasteignasali 8484806 eða á hedinn@fastborg.is  

SHARE