Gleðiganga Hinsegin daga: Götulokanir í dag

gay love

Gleðiganga Hinsegin daga og hátíðahöld henni tengd fara fram í dag. Gangan leggur af stað frá Vatnsmýrarvegi (nálægt BSÍ) kl. 14 og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá við Arnarhól sem stendur til kl. 17:30.

Í tengslum við hátíðina er búist við miklum fólksfjölda í miðborginni og óhjákvæmilega verða þar raskanir á bílaumferð. Athygli er vakin á því að götur verða lokaðar í kringum gönguleiðina og hátíðasvæðið frá kl. 12 á hádegi og þar til hátíðardagskrá við Arnarhól lýkur (sjá meðfylgjandi götulokanakort).

Íbúar Reykjavíkur og gestir eru beðnir að sýna samstarfsvilja og umburðarlyndi og hvattir til að nýta sér þjónustu Strætó (sjáwww.straeto.is). Einnig benda Hinsegin dagar ökumönnum á að í miðborginni eru bílastæðahús sem oft hafa verið illa nýtt á meðan hátíðahöldunum stendur og engin ástæða er til að leggja bílum ólöglega. Leigubílar munu hafa aðstöðu til að taka upp farþega í Ingólfsstræti (á bak við styttuna af Ingólfi Arnarsyni) á meðan götulokunum stendur.

Allar upplýsingar um gönguna má finna á www.hinsegindagar.is. Sími göngustjóra er 8681860.

Göngu- og öryggisstjórn Hinsegin daga sendir hýrar kveðjur til þátttakenda og gesta​.

Gleðilega hátíð!

SHARE