Gleðilega prófatíð

Þennan ágæta pistil skrifaði ég í lok nóvember á síðasta ári. Hann er vel við hæfi enn í dag. Í ár ætla ég hins vegar að njóta þess að vera ekki í prófum – í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér. Svona sirka. Þið hin, megi Guð vera með ykkur!

Nú fer í hönd sársaukafyllsti tími ársins. Þá á ég ekki við tímann sem ég ligg örvingluð í mæjónesmóðu, flökurt af jólaölsþambi. Nei, sá ljúfsári árstími er enn órafjarlægur draumur. Tölum aðeins um tímabilið þar á undan. Prófatíð. Að vera þátttakandi á blóðugum Hungurleikum hljómar meira heillandi. Að vera Tom Hanks í Cast Away. Eða fórnarlamb Michael Myers í Halloween-myndunum.

Vömbin á manni gutlar af kaffidrykkju. Tíð taugaáföll á baðherbergisgólfinu. Efasemdir um eigið gáfnafar. Ómögulegt að greina hvar baugarnir enda og geirvörturnar byrja. Fimmtíu fermetra íbúðin lyktar eins og klósett í Kolaportinu. Rauðvínsbann. Tilraunir til þess að kæfa sig með koddanum sínum. Grátur og gnístan tanna.

Ég er reynslubolti. Bolti sem er að hefja 10.prófatíð sína við Háskóla Íslands. Nei, ég er ekki Georg Bjarnfreðarson eða hvað hann nú hét. Skarta ekki einu sinni tveimur háskólagráðum. Engu að síður ætla ég að taka mér það bessaleyfi að gauka fáeinum ráðum að bæði þjáningarsystrum mínum og bræðrum.

Gerðu áætlun. Settu upp dagskrá fyrir hvern dag fyrir sig. Áætlaðu hversu mikið efni þú ætlar að tækla og innan hvaða tímamarka. Áætlaðu lærdómshlé. Sem þú eyðir ekki í að þvo þvott eða fara út með ruslið. Þú átt pottþétt vikuumgang af fötum. Það er líka samfélagslega samþykkt að líta út eins og ljótt bútasaumsteppi í prófatíð. Ruslið byrjar ekki að lykta fyrr en á fjórða degi. Það þarf ekki út strax. Gerðu eitthvað annað. Andaðu. Horfðu út í loftið. Öskraðu. Hringdu í mömmu. Fáðu þér göngutúr – hann má samt ekki undir neinum kringumstæðum enda á barnum í hverfinu. Ég tala af biturri reynslu. Tíunda prófatíðin og allt það.

Ef þú lærir á Bókhlöðunni er gott að hafa lærdómsfélaga. Það er óþolandi að þurfa að böggla saman tölvunni sinni í hvert sinn sem náttúran kallar. Einhver verður að vera á vaktinni. Þvaglátin eru jú tíð – kaffið rennur í gegn á ljóshraða. Ekki velja málglöðustu vinkonuna í þetta hlutverk. Þú átt að vera að læra. Ekki að hlusta á væl yfir því að afmælisútgáfan af Omaggio vasanum hafi selst upp med det samme.

Borðaðu morgunmat. Alla daga. Doritos og Red Bull eru ekki morgunmatur. Staðgóður morgunverður er bráðnauðsynlegt bensín. Tvær bingókúlur í eftirrétt – til þess að minna sig á að það er eitthvað til þess að lifa fyrir. Sofðu. Hentu þér í sófa á Bókhlöðunni. Hrjóttu í röðinni í Hagkaup. Það má allsstaðar grípa sér 5 mínútna orkulúr. Gerir gæfumuninn. Þess ber þó að gæta að lúrinn endi ekki í 5 tímum. Það er djöfullegt.

Þegar bugun er að ná sögulegu hámarki og hvorki bingókúlur né jólalögin á Létt-Bylgjunni ná upp lífsviljanum er T5 eina ráðið. T5 eða ,,taka fimm” eru fimm mínútna óáætluð lærdómshlé. Sem einungis má nota í neyð. Þegar ég tek T5 þá lygni ég aftur augunum. Sé jólafrí og foreldrahús í hyllingum. Mömmumat. Áskrift að Stöð 2. Frítt þvottaefni. Frítt WiFi. Greiðslukortið mitt lúrandi í vasanum langt fram yfir áramót. Jólahald. Hangikjöt. Heimalagað rauðkál. Ah, örvænting mín víkur. Ég sé ljós við enda ganganna. Eða við skulum hafa það ljóstýru. Alveg agnarsmáa. En hún er þarna. T5 gerir kraftaverk. Nema þegar það endar í miklu meira en 5 mínútum. Og maður rankar við sér í nýskúruðu húsi, búin að flokka allar ljósmyndir í tölvunni og baka sex sortir.

Ef þú hefur lifað af prófatíð áður – þá eru líkurnar þér í hag. Þú lifir þessa sennilega af líka. Ef þetta er þín fyrsta prófatíð hef ég ekkert handa þér nema tilvitun í Hungurleikana : May the odds be ever in your favor.

SHARE