Gómsætur sætkartöflupottréttur

Þessa snilld fann ég á blogginu hennar Tinna Bjargar og hef búið til þó nokkrum sinnum. Pottrétturinn er bæði hollur og sjúklega gómsætur – alveg ekta þriðjudagsmatur.

Þú finnur bloggið hennar Tinnu einnig á Facebook og mæli ég eindregið með því að þú smellir einu like á það þar.

Sjá einnig: Pottréttur með kalkún, eplum og karrí – Uppskrift

IMG_4661

Sætkartöflupottréttur

1 og 1/2 laukur

olía

1/2 – 1 tsk chiliduft

3 msk milt karrýmauk

3-4 msk tómatmauk

1 sæt kartafla

3 stórar gulrætur

1 lítið brokkólíhöfuð

1 dós kókosmjólk

1 dós nýrnabaunir

1 dós niðursoðnir tómatar

2-3 teningar grænmetiskraftur

svartur pipar

sjávarsalt

  • Saxið lauk og svissið í stórum potti með smá olíu í nokkrar mínútur eða þar til hann hefur linast. Bætið við chilidufti, karrýmauki og tómatmauki.
  • Afhýðið og skerið sæta kartöflu og gulrætur í smáa teninga ásamt brokkolíi og blandið vel saman við laukinn og kryddið.
  • Skerið niðursoðna tómata í hæfilega stóra bita og bætið í pottinn ásamt kókosmjólk og nýrnabaunum sem þegar hafa verið sigtaðar.
  • Smakkið pottréttinn til með grænmetiskrafti, svörtum pipar og sjávarsalti.
  • Hitið upp að suðu og látið krauma við vægan hita í 50 mínútur eða þar til sætu kartöflurnar og gulræturnar verða mjúkar.
  • Berið fram með góðu brauði

Sjá einnig: Æðislegur saltfiskpottréttur – Uppskrift

SHARE