Gömul og góð húsráð sem er enn hægt að nota

Kfrettir birti þessi skemmtilegu húsráð á dögunum, en þau voru upphaflega í Hús og Híbýli árið 1985:

Tímaritið Hús og Híbýli gaf út árið 1985 stórskemmtilegan bækling með góðum húsráðum, undir heitinu: „Ráð undir rifi hverju.“ Við leyfum okkur að endurbirta nokkur vel valin húsráð hér til gamans og látum lesendum eftir um að dæma hvaða ráð hafa staðist tímans tönn:

1. Að geyma rakan þvott

Þegar þvottur er mátulega rakur til þess að strauja hann, en tími vinnst ekki til, má geyma hann í plastpoka í ísskápnum og þvotturinn helst jafn rakur. Forðast skal þó að geyma þvott sem litur gæti runnið til í.

2. Kláði af ullarfötum

Marga klæjar undan ullarflíkum. Til þess að losna við það vandamál eru settar tvær teskeiðar af glyceríni út í skolvatnið.

3. Gömul nærföt

Þegar nælonnærföt eru orðin leiðinlega grá á litinn eftir mikinn þvott er hægt að lita þau brún með því að sjóða þau upp úr tei. Því dekkri sem þau eiga að verða því sterkari á teið að vera.

4. Að slétta gardínur

Ef gardínur eru ekki alveg sléttar eftir þvott má nota úðunarbrúsa og úða á þær vatni þegar þær hafa verið hengdar upp, og jafnvel hengja klemmur í faldinn.

5. Að fara í skó

Til þess að börn, sem vilja klæða sig sjálf, fari ekki í krummafót eru skór eða stígvél merkt með merkipenna innanfótar þannig að merkin snúi saman.

6. Þroskun tómata

Til að flýta fyrir þroskun tómata eru þeir settir í plastpoka með epli í. Pokanum er lokað og er hann geymdur á dimmum stað.

7. Stíflaður kúlupenni

Ef kúlupenni er stíflaður er reynandi að setja fyllinguna ofan í sjóðandi vatn stutta stund.

8. Þrútnir gluggar og skúffur

Þrútnir gluggar og skúffur sem erfitt er að opna og loka má liðka með því að bera á litlausan skóáburð, kertavax eða bón á kantana.

9. Að hreinsa skartgripi

Skartgripi úr gulli má hreinsa með sundurskornum lauk og þurrka síðan með hreinum klúti.

10. Frysting í mjólkurfernum

Hentugt er að nota hreinar mjólkurfernur til að geyma i ýmis matvæli sem á að frysta, til dæmis slátur.

 

SHARE