Gulrótaterta með kasjúkremi

Þessi dásamlega gulrótarterta kemur frá Albert eldar og er hreint út sagt dásamleg.

Hrátertur fara vel í maga og eru hollar með eindæmum. Og öllum líkar, svei mér þá, það er að segja ef fólk fæst til að smakka í fyrsta skipti. Hentar fólki t.d. með eggja-, mjólkur- og glúteinóþol. Ef kakan klárast ekki, hún er jú saðsöm, má alveg frysta hans. Hún tapar ekki gæðum við frystingu. Endilega útbúið hrátertu (og bjóðið í kaffi)

Sjá einnig: Syndsamlega góð gulrótarkaka – Uppskrift

Gulrótaterta með kasjúkremi.

1 1/2 b rifnar gulrætur

1 1/3 b möndlur

7-8 döðlur, saxaðar gróft

1 tsk múskat

1 tsk kanill

1/3 tsk salt

örlítið chili

börkur af 1/2 sítrónu

2/3 b kókosmjöl

1 msk chiafræ

1 msk vatn

Krem

1 b kasjúhnetur

1 tsk gott síróp

1-2 msk kókosolía, fljótandi

safi úr einni sítrónu

1/3 tsk kardimommur

Sjá einnig:Gulrótarkaka með guðdómlegu rjómaostakremi

Botn: Setjið gulrætur, möndlur, döðlur, sítrónubörk og krydd í blandarann eða matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið við kókosmjöli, chiafræjum og vatni og blandið saman smá stund. Takið krinlótt tertuform og setjið á tertudisk (ekki mota botninn) og hellið maukinu þar í, þjappið og kælið á meðan kremið er útbúið.

Krem: Leggið kasjúhnetur í bleyti í um 20 mín. Hellið vatninu af og setjið í blandarann ásamt sírópi og sítrónusafanum, maukið mjög vel. Bætið loks kókosolíu saman við og blandið áfram. Setjið yfir tertuna og skreytið með rifnum sítrónuberki og berjum.

Geymið tertuna í ísskáp í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.

Albert eldar á Facebook

SHARE