Hannar föt sem hana sjálfa vantar í fataskápinn

Katla ákvað að gerast fatahönnuður eftir að hún áttaði sig á því að það var ekkert að gera fyrir hana sem innanhúshönnuð á Íslandi. Hún fór af stað með vörumerkið Volcano Design árið 2008 og hafa íslenskar og erlendar konur kunnað vel að meta flíkurnar.

Katla Hreiðarsdóttir lauk námi í innanhúshönnun frá frá Istituto Europeo di Design í Barcelona rétt fyrir hrun. Hún taldi það praktískra heldur en að fara í nám í fatahönnun, sem hún hafði einnig mikinn áhuga á. En svo gripu örlögin í taumana. Það var nefnilega þetta blessaða hrun sem varð til þess að hún hefur aldrei starfað sem innanhúshönnuður.
„Þegar Guð átti að blessa Ísland var ekki séns að fá vinnu við innanhúshönnun. Ég ákvað því að reyna fyrir mér í fatahönnun. Þetta var gamall draumur, þannig mér fannst það alls ekki verra,“ segir Katla sem hafði áður útskrifast af textílbraut Fjölbrautaskóla Garðabæjar, þannig hún var ekki alveg ókunn fatahönnun þegar hún hófst fyrst handa við nýtt verkefni sem varð að Volcano Design. „Það er auðvitað ákveðin írónía að ég hafi aldrei starfað sem innanhúshönnuður heldur starfað sem fatahönnuður síðan ég kláraði innahúshönnun,“ segir hún og skellir upp úr.

Kvenlegar línur en engar rassaskorur

Katla hefur lagt áherslu á að hanna klassískar og klæðilegar flíkur fyrir venjulegar konur. Flíkur sem hún sjálf getur hugsað sér að ganga í. „Ég er aðallega í því að búa til eitthvað sem mig sjálfa vantar í fataskápinn. Eitthvað sem mig langar í. Ég er bara heppin að margir eru sammála mér og langar í það sama. Að sjálfsögðu reyni ég líka að fylgjast með því hvað er í tísku og reyni að haga hönnuninni að einhverju leyti eftir því. En ég hef mig sjálfa í huga. Ég hanna á mig. Ég er hvorki í stærð núll né í yfirstærð. Ég er venjuleg kona. En venjulegar konur geta verið í öllum stærðum og flíkurnar henta því öllum. Þær eru meira í að undirstrika kvenleikann og kvenlegar línur heldur en að sýna rassaskorur.“

Vendingarnir slógu í gegn

Í upphafi rak Katla verslun á Laugavegi undir merki Volcano Design en á síðasta ári ákváðu hún og systir hennar, hönnuðurinn María Krista, að sameinast undir nafninu Systur og makar. Reka þær nú verslanir á Laugavegi og á Akureyri. Og eins og nafnið gefur til kynna koma makar þeirra líka við sögu með einum eða öðrum hætti.

Þær flíkur sem hafa náð hvað mestum vinsældum hjá Volcano Design eru utanyfirflíkur sem kallast Vendingar en á tímabili klæddist önnur hver íslensk kona slíkri flík. „Á þeim tíma sem ég byrjaði með þá voru víðar ermar mikið í tísku og það var alveg ógerlegt að finna kápur yfir þannig kjóla og peysur. Hugmyndin í upphafi var því að hanna utanyfirflík sem hentaði slíkum ermum,“ útskýrir Katla, en Vendingarnir njóta enn mikilla vinsælda, bæði hjá Íslendingum og erlendum ferðamönnum.

Stolt af íslenskri framleiðslu

Katla gengur aðallega í fötum sem hún hannar sjálf en kaupir stundum fallegar og eigulegar flíkur eftir aðra hönnuði, þá sérstaklega íslenska. „Ég hef mjög gaman af því að styðja við aðra í sama bransa. Ég fæ alveg kikk út úr því.“
Aðspurð hvort það sé einhver flík eftir íslenskan hönnuð sem hana dreymir um að eignast, segir hún erfitt að velja. „Ég er að fíla mjög margt sem Helicopter er að gera, líka sem Forynja og Júníform eru að gera. Andrea stendur sig líka rosa vel. Ég get talið endalaust upp og dáist að því hvað fólk er duglegt að taka á því í þessum bransa. Sérstaklega þegar um er að ræða íslenska framleiðslu, sem er alveg meira en að segja það. Ég tek hattinn ofan fyrir þeim að standa í því,“ segir Katla en allar vörur Volcano Design hafa verið framleiddar á Íslandi frá upphafi. Þannig að hún þekkir af eigin raun hvað það getur verið strembið. „Það er samt mjög skemmtilegt að geta haldið framleiðslunni hérna heima og ég er mjög stolt af því,“ segir hún að lokum.

Viðtalið birtist fyrst í amk, fylgiblaði Fréttatímans

SHARE