Henni tókst ekki að sameina fjölskylduna fyrir myndatöku

Stór hluti af jólahefðunum er að senda út jólakort til vina og vandamanna og fylgja fjölskyldumyndir þá gjarnan með. Það er þó ekki alltaf auðvelt að ná öllum fjölskyldumeðlimunum saman í myndatöku eins og bóndi nokkur á Hornafirði fékk að kynnast.

Hún dó ekki ráðalaus og stillti upp í nokkuð óhefðbundna „fjölskyldu“-myndatöku.

Arna

Búa í ólíkum landshlutum

Arna Ósk Harðardóttir, bóndi á Hornafirði, hafði reynt að koma öllum í fjölskyldunni saman í jólamyndatöku síðastliðin tvö ár, til að láta ljósmynd fylgja með jólakortunum, án árangurs. Börnin þrjú og tengdabörnin búa í ólíkum landshlutum og koma sjaldnast öll saman nema á sjálfum jólunum – og þá er orðið of seint að taka mynd.

Safnaði Coke-flöskum með nöfnunum

Arna Ósk byrjaði í vor á þessu ári að kaupa Coke-flöskur með nöfnum fjölskyldumeðlimanna átta. Flestar keypti hún á Hornafirði en einhverjar á Reyðarfirði og í Reykjavík.

Untitled

„Ég þurfti að umstafla dálítið í búðunum til að leita að réttu flöskunum og ég fór oft í fýluferðir. Fólk hefur eflaust haldið að ég væri starfsmaður í þessum verslunum. Ég reyndi að gramsa þegar enginn var nálægt mér en ég gerði það helst þegar ég var stödd í Reykjavík þar sem enginn þekkti mig og þar sem ég kippti mér ekki upp við ef ég var litin hornauga fyrir að róta í goskælinum,“ segir Arna Ósk.

Stillti flöskunum upp fyrir myndatöku

Arna Ósk keypti fyrstu Coke-flöskuna í maí en þá síðustu í október.

„Þegar ég var komin með allar flöskurnar hugsaði ég, hvað á ég að gera við þetta? Þá fékk ég hugmyndina að því að stilla flöskunum upp í myndatöku. Við fjölskyldan hittumst eiginlega aldrei, við erum svo mörg og búum í ólíkum landshlutum. Ég hringdi í son minn í Reykjavík og bar hugmyndina undir hann og honum fannst hún frábær. Svo var myndin tekin í byrjun nóvember í Húsafelli,“ segir Arna Ósk.

10815656_10152833663235138_1020972626_n

Fékk óvænta gjöf frá Vífilfell í kjölfarið

Arna Ósk sendi starfsmönnum Vífilfells póst um þessa óhefðbundnu leið sem hún fór við fjölskyldumyndatökuna og ákváðu þeir í kjölfarið að senda henni smá jólaglaðning fyrir hugmyndina. Arna Ósk fékk gjöfina afhenta nýverið og sagði við það tilefni að hún hefði ekki verið að vonast eftir neinu slíku heldur vildi hún einfaldlega sýna hvernig hægt væri að nota Coke-flöskur með skemmtilegum hætti.

Tengdar greinar:

Falleg saga um stóra fjölskyldu

25 atriði til að myndast sem best

Furðulegar fjölskyldumyndir

SHARE