Hillary Duff er að hitta þjálfarann sinn

Ekki er mjög langt síðan sást til Hillary Duff kyssa fyrrverandi eiginmann sinn Mike Comrie, en nú eru heitustu fregnirnar að hún er búinn að vera að hitta einkaþjálfara sinn í töluverðan tíma. Þau byrjuðu á því að mynda með sér vinasamband á síðasta ári, en nú er svo komið að þau eyða frístundum sínum saman og fara meðal annars tvö ein út að borða á fína veitingastaði.

Lukkulegi einkaþjálfarinn heitir Jason Walch og er stofnandi Rise Nation líkamsræktastöðvanna. Hillary hefur ekki enn viðurkennt fyrir heiminum að hún eigi í ástarsambandi með Jason, en þau eru smátt og smátt að eyða meiri tíma saman.

Sjá einnig: Hvað er að gerast á milli Hillary Duff og fyrrverandi?

 

 

 

 

hill

hil 3

SHARE