Hnetusmjörsmuffins með Nutellakremi

Enn eitt hnossgætið frá uppáhalds matarbloggaranum mínum – henni Tinnu Björgu. Ég var næstum búin að sleikja tölvuskjáinn þegar ég rak augun í þessa dýrð. Hnetusmjör, Nutella, súkkulaðibitar – já, ef það er til himnaríki þá lítur það svona út.

IMG_0073

Hnetusmjörsmuffins með Nutellakremi

Muffins

600 gr hveiti

150 gr púðursykur

200 gr hrásykur

4 tsk lyftiduft

1 tsk salt

4 egg

200 gr brætt smjör

400 ml mjólk

3 tsk vanilludropar

3/4 krukka hnetusmjör

200 gr súkkulaðibitar

  • Blandið saman í skál hveiti, púðursykri, hrásykri, lyftidufti og salti.
  • Brjótið egg í aðra skál og pískið örlítið. Blandið saman við eggin bræddu smjöri, mjólk og vanilludropum. Hrærið blöndunni smátt og smátt saman við þurrefnin.
  • Velgið hnetusmjör í örbylgjuofni og hrærið saman við deigið ásamt súkkulaðibitum.
  • Fyllið stór muffinsform af deigi og bakið í ofni við 180° í 20-25 mínútur. Ég klippti bökunarpappír niður í litlar arkir og bjó til muffinsformin sjálf.
  • Súkkulaðibitarnir sem ég notaði eru 56% frá Freyju.

Sjá einnig: Bananakaka með hnetusmjöri og súkkulaði – Uppskrift

Nutellakrem

100 gr mjúkt smjör

1 krukka Nutella

1/4 krukka hnetusmjör

2 dl flórsykur

1 tsk vanilludropar

2-4 msk mjólk

  • Þeytið smjör þar til það verður alveg mjúkt og kekkjalaust.
  • Bætið við nutella, hnetusmjöri, flórsykri og vanilludropum og þeytið áfram.
  • Þynnið kremið með 2-4 msk af mjólk þannig að það fái silkimjúka áferð.

IMG_0096

Sjá einnig: Fljótlegir múslíbitar með hnetusmjöri og ristuðum möndlum

Upp með svuntuna, það er nú einu sinni laugardagur!

Ég mæli svo eindregið með því að fylgja blogginu hennar Tinnu á Facebook – uppskriftirnar hennar á enginn að láta framhjá sér fara.

SHARE