Hollari heimagerð páskaegg – Uppskrift

Þessa uppskrift prófaði ég fyrst um síðustu páska og er hún að sjálfsögðu frá henni Sigrúnu á CaféSigrun og með góðfúslegu leyfi hennar fæ ég að deila uppskriftinni með ykkur.  Ég verð að viðurkenna að ekki voru allir fjölskyldumeðlimir hrifnir af þessari hugdettu móður sinnar. Þannig að sumir fengu líka venjuleg páskaegg til vara en voru meira en tilbúin að hjálpa til við að útbúa hin og smakka. Í ár ætla ég að fara að ráðum Sigrúnar og búa til minni en fleiri egg svo úr verði smakk handa gestum og gangandi. Ég fann páskaeggjamót í versluninni Pipar og salt á Klapparstíg en þar fást þau í ýmsum stærðum og gerðum.

Ég lenti í smávægilegum erfiðleikum við að ná skeljunum heilum úr mótunum, etv gengur það betur með siliconmótum en ég á ekkert svoleiðis fínerí og veit ekki til þess að þau fáist hérlendis. Ef einhver lumar á hvar svoleiðis páskaeggjamót er að finna má sá hinn sami senda mér ábendingu.

Það er ekki hægt að segja að það sé neitt sérstaklega ódýrt að búa til sitt eigið páskaegg vegna þess að lífræn vara er hrikalega dýr.  Auðvitað er líka hægt að nota ódýari hráefni. En gaman er það og upplögð páskaföndurstund með börnunum svo er líka hægt að velja hollari mola inn í eggið ásamt því að útbúa persónulega málshætti.
Allaveganna skemmtum við okkur konunglega.

Uppskriftin frá Café Sigrún
gerir 1 egg (eins og stórt avocado að stærð) eða fleiri minni.

Innihald
•    200 g dökkt (eða ljóst), lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri (t.d. Rapunzel eða Green & Black’s) eða annað mjólkurlaust súkkulaði fyrir þá sem eru með mjólkuóþol.
•    Heimatilbúið konfekt, þurrkaðir ávextir eða annað gotterí úr heilsubúð
•    1 eða 2 páskaeggjamót (skeljar álíka stórar og stórt avocado/mango eða minni) og botn

Skeljarnar:
1.    Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. (Setjið svolítið vatn í lítinn pott. Setjið skál ofan á pott þannig að skálin sitji á brúnunum. Setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita). Gætið þess að ofhita ekki súkkulaðið og það má alls ekki fara dropi af vatni ofan í skálina. Gott er að bræða súkkulaðið tvisvar sinnum (láta storkna alveg og bræða aftur).
2.    Látið súkkulaðið storkna aðeins.
3.    Hellið nokkrum matskeiðum ofan í annað plastmótið, látið súkkulaðið renna vel um mótið. Einnig getið þið penslað súkkulaðinu.
4.    Látið storkna (getið sett í ísskápinn í nokkrar mínútur).
5.    Endurtakið tvisvar í viðbót (þ.e. penslið súkkulaðið og kælið).
6.    Setjið að lokum eina góða rönd af súkkulaði meðfram brúninni (mesta hættan á broti).
7.    Setjið í ísskáp í nokkrar mínútur.
8.    Endurtakið með hitt plastmótið. Ef þið eruð einungis að nota eitt, þurfið þið að láta súkkulaðið storkna vel áður en þið notið mótið aftur. Gætið þess að enginn raki, fingraför eða ryk sé í mótinu.

Botninn:
1.    Hellið súkkulaði í botninn. Látið það storkna.
Að ná súkkulaðinu úr plastmótunum:
1.    Nú skuluð þið taka mótin tvö og leggja þau á hvolf ofan á disk. Leggið höndina yfir kúpta hlutann þannig að hlýja handarinnar hiti súkkulaðið eilítið. Losið mótið varlega frá (gott er að nota tauhanska til að káma ekki út eggið) og gætið þess að brjóta ekki skeljarnar. Þetta hefur reynst svolítið erfitt stundum og þá er bara að sýna þolinmæði.
2.    Ef eggið brotnar, má bræða súkkulaðið og byrja aftur.
3.    Endurtakið með hina skelina sem og botninn.

Fyllingin:
1.    Hafið til konfekt, þurrkaða ávexti eða annað gotterí sem þið viljið setja í eggið. Það er hægt að fá alls kyns gotterí í heilsubúðum sem fylla má svona egg með. Einnig er gaman að skrifa skemmtilegan og persónulegan málshátt og setja inn í eggið.

Hliðarnar (ekki skreyttar með sprautupoka):
1.    Ef ekki á að skreyta hliðarnar með súkkulaði úr sprautupoka: Setjið konfekt eða annað gotterí í aðra skelina. Penslið súkkulaði á brún skeljarinnar. Leggið hina skelina ofan á. Látið storkna. Penslið svolitlu (nánast storknuðu) súkkulaði ofan á botninn og leggið eggið ofan á. Haldið við í smá stund.

Hliðarnar (skreyttar með sprautupoka)
1.    Ef skreyta á hliðarnar með súkkulaði úr sprautupoka: Setjið konfektið í aðra skelina.
2.    Setjið nokkra dropa af súkkulaði á brúnir annarrar skeljarinnar. Leggið hina skelina varlega ofan á. Þær ættu að festast aðeins saman.
3.    Leggið allt til hliðar á meðan afgangurinn af súkkulaðinu storknar. Það þarf að vera þannig að hægt sé að draga skeið í gegnum súkkulaðið og það haldi enn þá lagi sínu án þess að vera stíft.
4.    Setjið súkkulaði í sprautupoka og sprautið aðra hlið páskaeggsins. Látið storkna.
5.    Sprautið hina hlið páskaeggsins og látið storkna.
6.    Sprautið smá klessu ofan á botn páskaeggsins og leggið eggið ofan á. Haldið við í smástund á meðan það stífnar.

Skreyting ofan á:
1.    Ef þið viljið setja unga á toppinn (eða strump eða eitthvað annað smádót), setjið þá smá klessu af súkkulaði á toppinn og látið skrautið ofan á. Einnig má skreyta eggið með fallegum borða. Ef þið gerið nokkur lítil egg má raða þeim í fallega körfu, ásamt öðru gotteríi og skreyta svo með borða, páskaliljum eða öðru páskalegu dóti.

Gott að hafa í huga

•    Gott er að bræða súkkulaðið tvisvar, það er auðveldara í meðhöndlun þannig.
•    Plastmótin fyrir páskaegg fást t.d. í Pipar og salt, Klapparstíg.
•    Páskaeggin verða mött fljótlega eftir að þau koma úr mótinu.
•    Gott er að nota hanska eða servíettu til að meðhöndla súkkulaðið svo ekki komi fingraför.
•    Þið getið notað dökkt eða ljóst súkkulaði, allt eftir smekk og þá getið þið stýrt því þannig að það henti t.d. þeim sem hafa mjólkuróþol.
•    Athugið að dökkt súkkulaði inniheldur yfirleitt mjólk, lesið ávallt innihaldslýsingu ef þið eruð með óþol/ofnæmi. Hægt er að nota mjólkurlaust súkkulaði í staðinn.
•    Nota má carob í stað súkkulaðis og kakós. Carob hentar þeim sem eru viðkvæmir fyrir örvandi efnum kakósins og hentar því börnum vel. Carob fæst í heilsubúðum og heilsuhillum matvöruverslana. Það fæst bæði sem duft (eins og kakó) og í plötum (eins og súkkulaði).

SHARE