Hræðileg loðin gúrka! – Kona lemur nýja eiginmanninn

Sumir kjósa að halda í mey- og sveindóm sinn fram yfir brúðkaup, eins og flest okkar vita. Fyrstu stundir þessa fólks sem hjón voru þó ekki teknir út með sældinni.

Mnobo Madibyl (32) lenti í þeim kröppum þegar nýja eiginkona hans lúbarði hann þegar hann fór úr buxunum í fyrsta skiptið fyrir framan hana. Hún missti vitið og byrjaði að lemja hann fyrir það sem var í nærbuxum hans. Hún öskraði á eiginmann sinn og sagði getnaðarlim hans vera eins og hræðilega loðna gúrku!

Sjá einnig: „Hvað er eðlilegt typpi?” – Rannsókn sviptir hulunni af reðurlengd karla

1a-10

Sjá einnig: Tíðni stinningarvanda eykst með aldrinum

Mnobo sagði að forleikurinn eftir brúðkaupið hafði gengið afar vel en þegar hann mundaði sig við að fara úr nærbuxunum, öskraði hún og barði hann í höfuðið með vínsflösku og reyndi síðan að kæfa hann með rauðum og hvítum bangsa sem hann hafði gefið henni í gjöf. Hún reyndi einnig að bíta af honum eyrað og greip í eistu hans og kreisti. Konan segir þó að hún hafði bara orðið hrædd við lim hans, þar sem hann var langur, hræðilegur og loðinn eins og runni. Hún heldur því fram að hún hafði aðeins slegið hann á kinnina í skelfingu sinni við liminn.

Hveitibrauðsdagarnir byrjuðu afar illa hjá þeim hjónum, en Mnobo vissi vel að fólki þætti fermingabróðir hans vera veglegur, enda hafði hann fengið viðurnefnið Big Johnson og anaconda af liðsfélögum sínum.

Ekki er vitað hvert þetta hjónaband stefnir og hvort að þau hafi einhvern tíma stundað kynlíf, enda er hann enn að jafna sig af sárum sínum.

SHARE