Hvað er barnaastmi?

 

Hvað gerist við astmakast?

  1. Slímhimnan í lungnaberkjunum bólgnar
  2. Samdráttur verður í berkjum – litlu hringlaga vöðvarnir sem eru í berkjunum dragast saman (krampakenndur samdráttur – spasmi)
  3. Þetta ástand leiðir til aukinnar slímmyndunar og framkallar öndunarerfiðleika hjá barninu. Þá heyrast oft pípandi eða hvæsandi öndunarhljóð.

Hvaða einkenni geta bent til barnaastma?

Yngri börn (0-3 ára):

  • títt og langvarandi kvef
  • pípandi/hvæsandi öndun
  • þrálátur hósti, þá án kvefs
  • barnið dafnar ekki vel.

Eldri börn (3-15 ára):

  • Pípandi/hvæsandi öndun
  • Þrálátur hósti
  • Vakna á nóttunni eða á morgnana með hósta
  • Áhugaleysi (t.d. ef barnið vill skyndilega hætta íþróttaiðkun)

Sjá einnig: Sótthiti barna: Hvenær er hætta á ferðum?

Hversu algengur er sjúkdómurinn hjá börnum?

  • Barnaastmi er algengur sjúkdómur
  • U.þ.b. 1-2% barna fá astma áður en þau vaxa úr grasi.
  • U.þ.b. 25% barna fá einhvern tímann svipuð einkenni og lýst er meðð barnaastma, án þess þó að vera með astma.

Hvað veldur astma hjá börnum?

  • Astmi hjá börnum er oft af völdum ofnæmis
  • Frjókorn (t.d. birki eða gras)
  • Dýrahár (t.d. hunda- eða kattarhár)
  • Ýmsar fæðutegundir (mjólk, egg)
  • Sveppir

 

  • Framtíðarhorfur
    • Í flestum tilfellum eldist sjúkdómurinn af barninu
    • Þumalfingursreglan: því vægari sem sjúkdómurinn er, því meiri líkur eru á því að astminn hverfi.
  • Hvað ber börnum með astma að varast?
    • Það sem barnið hefur þekkt ofnæmi fyrir.
    • Tóbaksreyk.
    • Kvefpestir.
    • Mengunarvalda og ryk ýmisskonar.
    • Áreynslu/íþróttaæfingar (ATH. bannið barninu ekki að stunda íþróttir, hægt er að ráða bót á þessu með lyfjum).
  • Hvenær á að leita læknishjálpar?
    • Ef grunur leikur á að barnið sé með astma.
    • Ef barnið er með öndunarerfiðleika.
    • Ef barnið skiptir um húðlit, einkum ef það blánar í kringum varir.
    • Ef vart verður við öndunarþreytu (barnið andar grunnt og hratt).
    • Ef astmakastið er mun verra en venjulega
    • Ef lyfin gera ekki tilætlað gagn.
  • Hvernig greinir læknirinn barnaastma?
    • Greiningin byggist á lýsingu foreldra og barnsins á sjúkdómseinkennunum.
    • Starfsemi lungnanna er mæld með öndunarprófi.
    • Meðferðin er árangursrík.
  • Af hverju er lyfjameðferð nauðsynleg?

Sjá einnig: Blóðnasir barna – hvað er til ráða?

Oft er nauðsynlegt og gott að gefa börnum með astma lyf vegna:

  • lyfin slá á einkennin og börnin að þau geta tekið þátt í leik og starfi eins og önnur börn
  • lyfin draga úr viðbrögðum líkamans gegn ofnæmisvaldinum sem framkallar kastið.
  •  Eykur að öllum líkindum líkurnar á því að astminn eldist af barninu og því batni.
  • lyfin minnka skaðann sem astmi veldur á lungun og lungnastarfsemi – lungun þroskast eðlilega.

 

SHARE