Hvað eru mislingar?

Mislingar er einhver mest smitandi veirusjúkdómur sem til er. Hann á upptök sín í veiru sem nefnist morbilli. Mislingar er óþægilegasti barnasjúkdómurinn og sá hættulegasti af þeim sem hafa útbrot í för með sér. Hættan stafar af fylgikvillum sem mislingar geta valdið. Mislingar eru í raun ekki til lengur hér á landi vegna bólusetningar gegn þeim hjá ungbörnum í allmörg ár.

Hvernig berst mislingasmit?

Það berst með úðasmiti í lofti. Jafnvel þótt sá smitaði sé hafður í einangrun getur smit borist milli herbergja. Allir sem ekki hafa áður fengið mislinga eiga á hættu að smitast.
Ungabörn á brjósti eiga þó ekki á hættu að smitast því þau njóta verndar efna sem þau fá með móðurmjólkinni, hafi móðirin fengið mislinga.

Sá sem fær mislinga getur smitað aðra átta dögum eftir að hann smitast og áður en veikin brýst út. Hann getur smitað þangað til útbrotin hverfa eða í það minnsta fimm daga eftir að þau hefjast. Dauðir hlutir eða fólk, sem ekki er móttækilegt fyrir smiti getur ekki borið mislingasmit.

Hver eru einkennin?

Meðgöngutími mislinga – tíminn frá því einstaklingur smitast og þar til
hann veikist – getur verið mislangur en algengt er að hann sé ein til tvær vikur.

Eftir tæpar tvær vikur birtast fyrstu einkennin sem eru:

Hiti, hækkar upp í ca 39°C
Nefrennsli
Hósti
Roði í augum
Viðkvæmni fyrir ljósi
Stór og aum þykkildi á hálsi eru algeng, svo og eymsli í koki
Einnig geta myndast gráir blettir á stærð við sandkorn í slímhimnu á
innanverðum neðri vörum gegnt augntönnum, svonefndar mislingadröfnur, sem eru undanfari útbrotanna sem á eftir fylgja.

Eftir þrjá til fjóra daga er ekki ólíklegt að hitinn lækki um stund en hann hækkar þó fljótlega aftur og þá koma útbrotin fram:
Viku síðar er barnið orðið hitalaust á ný.

Ráðlegt er að halda börnum heima og ekki senda þau í skóla fyrr en þau eru orðin hitalaus. Mislingar valda ónæmi, sem stendur ævina á enda.
Nú orðið stendur börnum til boða fjölónæmisbólusetning við átján mánaða og níu ára aldur, en í henni er meðal annars bóluefni gegn mislingum.

Sjá einnig: Hvað er lungnabólga?

Batahorfur

Verði barnið veikara eða ef hitinn helst hár er rétt að kalla sem fyrst á
lækni. Mikilvægt er að tryggja að mislingarnir leiði ekki til fylgikvilla á
borð við:
Lungnabólgu
Eyrnabólgu í miðeyra
Sýkingu í taugakerfi sem er til allrar hamingju sjaldgæf og telst til
undantekninga.

Konur sem hyggja á barneignir ættu að ganga úr skugga um hvort þær hafi fengið mislinga. Mislingar á meðgöngu geta valdið fóstursýkingu og jafnvel fósturláti þegar verst lætur. Séu konur í vafa geta þær leitað læknis og látið bólusetja sig en það má ekki gera eftir að kona er orðin þunguð.

Hvernig eru mislingar meðhöndlaðir?

Best er að barnið sé rúmliggjandi í svölu herbergi þar sem lýsing er
hófleg. Eingöngu má gefa hóstamixtúru eða hitastillandi lyf samkvæmt
læknisráði.

 

SHARE