Hvað gerir kona rétt fyrir brjóstnám að fullu?

Deborah Cohan ákvað að dansa, á skurðstofunni ásamt staffinu sem framkvæma átti aðgerðina.
Deborah er tveggja barna móðir og kvensjúkdóma- og fæðingalæknir.

Á miðvikudag voru bæði brjóst hennar fjarlægð á Mt. Zion spítalanum í San Fransisco, Deborah ákvað svo sannarlega að taka æðruleysið og kjarkinn á þetta alla leið og dansaði af mikilli gleði við lag Beyonce “Get me bodied” ásamt læknum og hjúkrunarfólki sem framkvæma átti aðgerðina.

Deborah hvatti ættingja sína og vini til að dansa við lagið og senda myndir eða myndbönd af dansinum til sín svo að hún gæti horft á þau meðan hún væri að jafna sig eftir aðgerðina.

“Ég sé fyrir mér heilunarmyndbandsmaraþon. Það er ekkert sem færir mér meiri gleði en að hvetja aðra til að dansa, hreyfa sig,  fylgja líkamanum. Eruð þið með?” sagði Deborah og þau voru svo sannarlega með hér

[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”uPdheFjRm4E#t=156″]

SHARE