Hvaða starf hentar hverju stjörnumerki?

Það er alltaf gaman að lesa allskyns um stjörnuspeki. Maður hefur eitthvað svo lúmskt gaman að því, sérstaklega ef manni finnst það eiga við mann og þá sem maður þekkir.

Hér er listi yfir hvaða störf henta hverju stjörnumerki.

 

Hrúturinn (21. mars – 19. apríl)

Hrúturinn er þekktur fyrir faglegt viðmót og ákveðni. Hann er oft með mjög djarfar hugmyndir og vinnur mjög vel í kappsömu umhverfi.

Starf: Hrúturinn nýtur sín vel í störfum eins og markaðssetningu, almannatengingu og vöruþróun.

 

Nautið (20. apríl – 20. maí)

Nautið þráir stöðugleika og vinna vel í umhverfi sem er öruggt. Það er gott í að skipuleggja og miðla upplýsingum á skýran hátt.

Starf: Nautið nýtur sín vel í viðskiptafræði og kennslu.

 

Tvíburinn (21. maí – 20. júní)

Tvíburinn er harðduglegur og vinnur best undir álagi. Það er mjög auðvelt að láta honum leiðast og hann velur miklu frekar að vinna í miklu stressi svo honum leiðist alls ekki.

Starf: Tvíburinn nýtur sín vel sem verðbréfasali og geta einnig fundið sig vel í fasteignasölu.

 

Krabbinn (21. júní – 22. júlí) 

Krabbinn er móðurlegasta merkið af öllum stjörnumerkjunum. Krabbinn vill vernda og hlúa að öðrum og getur gert margt í einu.

Starf: Krabbinn á vel heima í hjúkrunar- og lækningastörfum en geta einnig unað sér vel í mannauðsstjórnun.

[nextpage title=”Fleiri stjörnumerki”]

Ljónið (23. júlí – 22. ágúst) 

Ljónið er leiðtogi, punktur og basta. Það er sjálfstætt og njóta þess að veita öðrum innblástur með verkum sínum.

Starf: Sjálfstæði og þörf fyrir að veita öðrum innblástur, er til þess fallið að viðkomandi stjórni sínu eigin fyrirtæki. Ljónið nýtur þess líka að vera samfélagslegur leiðtogi og listamaður.

 

Meyjan (23. ágúst – 22. september)

Meyjan er með mikla fullkomnunaráráttu. Hún er með frábært minni og notar það við að skipuleggja sig í þaula.

Starf: Meyjan er góð í því að vinna með tölfræði og greiningar. Einnig gæti hún vel starfað við að búa til kort, heimasíðugerð og forritun.

 

Vogin (23. september – 22. október)

Vogin er mjög heillandi og vinnur vel með öðrum. Hún er þekkt fyrir sanngirni og réttlætiskennd.
Starf: Vogin ætti að vinna við stjórnun eða dómgæslu. Hún getur líka verið öflugur meðlimur í réttindabaráttum.

Sporðdrekinn (23. október – 21. nóvember) 

Sporðdrekinn er mjög góður í að takast á við krefjandi aðstæður. Hann á auðvelt með að einbeita sér þó hann sé í miklu áreiti.
Starf: Sporðdrekinn ætti að vera í lögreglunni eða að vera skurðlæknir.
[nextpage title=”Fleiri stjörnumerki”]

Bogmaðurinn (22. nóvember – 21. desember) 

Bogmaðurinn hefur sterka siðferðis- og réttlætiskennd. Hann elskar að læra nýja hluti, hefur mikinn húmor en er ekki hrifinn af endurtekningum.
Starf: Bogmaðurinn ætti að þjálfa íþróttir, hugsa um dýr eða vera ráðgjafi.

Steingeitin (22. desember – 19. janúar)

Steingeitin er eirðarlaus og metnaðargjörn. Hún er ekki hrædd við þá sem hafa völdin en vill að allir virði tímamörk.
Starf: Steingeitin ætti að vera í viðskiptastjórnun eða kerfisstjórnun. Þeir eiga líka vel heima í vefþróun.

Vatnsberinn (20. janúar – 18. febrúar)

Vatnsberinn er með mikla ævintýraþrá og harðduglegur. Hann er frjálslegur og lætur ekkert sérstaklega vel að stjórn.
Starf: Vatnsberinn ætti að vera ljósmyndari, grafískur hönnuður eða tónlistarmaður.

Fiskurinn (19. febrúar – 20 mars) 

Fiskurinn er gömul sál. Hann hefur mikla þörf til að finna upp á einhverju skapandi og óhefðbundnum lausnum.

Starf: Fiskurinn ætti að vinna við tónlist og listmeðferð.

 

Heimildir: Higherperspective.com
SHARE