Jarðarber, gæði þeirra og ýmis annar fróðleikur

Jarðarberið er kallað “the queen of fruits” í löndum Asíu vegna þess hversu pakkað jarðarberið er af hollustu.

Borið saman við ávexti eins og epli, appelsínur eða banana að þá eru jarðarberin hæst í næringu af öllum þessum ávöxtum.

Þessar safaríku hjartalöguðu dásemdir hafa svo mikið meira upp á að bjóða en sætt bragðið. Sumir kalla jarðarberin “powerfood” .

“Strawberries are the angles of the eart, innocent & sweet with green leafy wings reaching heavenward” – Jasmine Heiler.

Ég elska jarðarber. Ég verð alltaf jafn glöð þegar ég finn falleg og safarík jarðarber út í búð. Því miður að þá er ekki hægt að rækta þau hérna úti í garði. Jarðarber eru best fersk og ætti að borða strax og keypt hafa verið. Hvort sem þú borðar þau bara eintóm eða notar í salat að þá eru þau alltaf jafn holl og góð.

Hérna eru helstu ávinningar af því að borða jarðarber:

–         Þau geta hjálpað þér að losna við fitu af rassinum (og fleiri stöðum)

Rauði liturinn á jarðarberjum inniheldur efni sem heitir anthocyanins sem er efni er örvar fitubrennslu. Tilraun var gerð á hóp af dýrum og þeim var gefið mataræði sem var hátt í fitu ásamt efninu anthocyanins og þau þyngdust 24% minna en hinn hópurinn af dýrum sem fékk ekki anthocyanins.

–         Eykur skammtíma minnið

Andoxunarefnin í jarðarberjum hjálpa skammtíma minninu að skerpast um 100% á 8 vikum.

–         Jarðarber eru afar lág í kaloríum en há í trefjum

Einn bolli af jarðarberjum inniheldur aðeins 54 kaloríur. Talandi um snilldar millibita.

–         Róa niður bólgur

Jarðarber lækka C-reactive próteinið (CRP) í blóðinu en það getur orsakað bólgur í líkamanum. Í rannsókn sem var gerð á konum sem borðuðu 16 eða fleiri jarðarber á viku sýndi að þær voru 14% minna líklegri til að fá hækkun á efninu CRP.

–         Minnka líkur á hjarta og æðasjúkdómum

Flavonoids er efnið sem ber ábyrgð á lit og bragði á jarðarberjum. Þetta efni lækkar áhættuna á hjarta og æðasjúkdómum.

–         Góð fyrir beinin

Jarðarber innihelda kalíum (potassium), K-vítamín og magnesíum sem eru afar mikilvæg fyrir góða heilsu beina.

–         Geta komið í veg fyrir krabbamein í vélinda

Rannsóknir sína að frostþurrkuð jarðarber í dufti geti dregið verulega úr líkum á krabbameini í vélinda.

–         Jarðarber hægja á öldrunarferlinu

Jarðarber eru stúfull af biotin, en það efni styrkir hár og neglur. Einnig innihalda þau andoxunarefnið ellagic acid sem heldur húðinni stinnri. Og það viljum við nú öll.

–         Afar góð ef þú ert að létta þig

Samsetning á nitrate í jarðarberjum er það efni sem stuðlar að góðu blóðflæði og súrefni í líkamanum og er það afar gott ef þú þarft að léttast um nokkur kíló.

–         Jarðarber eru góð fyrir sjónina

Að borða 3 eða fleiri skammta af ávöxtum eins og t.d jarðarberjum getur lækkað áhættuna á því að sjónin fari að deprast.

Næringargildi jarðarberja:

Jarðarber eru talin vera lang hollasti ávöxturinn. Þau eru pökkuð af andoxunarefnum, þau lækka blóðþrýstinginn og verja hjartað. Jarðarber eru stútfull af nauðsynlegum vítamínum og steinefnum og einnig innihalda þau sodium, þau eru laus við allt kólestról og fitulaus.

Það eru 54 kaloríur í einum bolla af niðurskornum jarðarberjum (166g) sem er um 1/3 af kaloríum í t.d banana.

“We do not rejoice in victories. We rejoice when a new kind of cotton is grown and when strawberries bloom in Israel” – Golda Meir.

Viðvörun fyrir suma:

Oxalates er efni sem er algengt í dýrum, plöntum, mannfólkinu og já, jarðarberjum. Þegar þetta efni verður of samþjappað í líkamsvökvanum þá kristallast það og getur orsakað alvarleg heilsufarsleg vandamál.

Fólk með gallblöðru eða nýrna vandamál ætti ekki að borða jarðarber. Rannsóknir hafa sýnt af oxalates getur dregið úr inntöku kalks í líkamann. En, það þyrfti enn frekari rannsóknir til að sanna að þetta sé rétt.

Saga jarðarbersins

Jarðarber hafa vaxið villt út um allan heim í afar langan tíma.

–         234 fyrir krist. Það eru sönnunargögn um að jarðarber hafi vaxið villt á Ítalíu.

–         1300. frakkar byrjuðu að nota jarðarber í lækningaskyni.

–         1400. múnkar í Evrópu byrja að nota jarðarber til að lita á handritin sín.

–         1500. Jarðarberin urðu þekktari og fólk fór að nota þau í hinum ýmsa tilgangi.

–         1588. Jarðarber uppgövtast í Virginíu í fyrsta skipti sem að Evrópubúar stigu þar á land.

–         1643. Fyrstu landnemarnir í Massachusetts njóta jarðarberjanna sem ræktuð eru af infæddum indjánum.

–         Seint á 18 öld. Fyrsti jarðaberjagarðurinn er ræktaður í Frakklandi.

–         1835. Fyrstu bandarísku jarðarberin eru ræktuð.

–         1900’s. Kaliforníuríki byrjar að rækta jarðarber og framleiðir í dag um 80% af allri jarðaberjaframleiðslu í Bandaríkjunum. Ekki nema um ein billjón punda af jarðarberjum á ári!

Skemmtilegar og áhugaverðar staðreyndir um jarðarber

Gamlar sögur segja að ef þú skerð jarðarber sem vaxið hefur tvöfalt í tvennt og deilir því með manneskju af hinu kyninu, þá munt þú verða ástfanginn fljótlega.

Það eru til um 600 afbrigði af jarðarberjum sem eru mismunandi í stærð, útliti og bragði.

Myndir af jarðarberjum eru grafinn í steina frá miðöldum sem tákn um fullkomnum og réttlæti. Þessi hönnun er einnig oft grafinn á altari eða í kringum efstu súlur í dómkirkjum og kirkjum.

Jarðarberið var merki Venusar, gyðju ástarinnar, því oft þá vaxa jarðarber í hjartalaga formi og þau eru afar rauð að lit.

Sagan segir að jarðarberið hafi fengið nafn sitt frá enskum börnum sem týndu jarðarber, hengdu þau á strá og seldu þau sem “straws of berries”.

Jarðarberið tilheyrir rósafjölskyldunni, en einnig eplum og plómum.

Jarðarber eru ekki í raun og veru ber. Bláber og hindber hafa fræin innan í sér en jarðaberin bera sín fræ utan á.

Í Róm til forna voru jarðarber notuð til að lækka hita, hálsbólgu, vinna gegn  nýrnasteinum og blóðsjúkdómum í lifrinni og miltanu.

Til að fá alla næringu sem að jarðarberin innihalda skal alltaf kaupa þau fersk. Þau eiga að vera stinn og hafa djúpan rauðan lit og grænan “hatt” og ilma vel.

Lítil jarðarber eru sætari og hafa meira bragð. Kaupir þú jarðarber skaltu borða þau helst strax.

Þegar jarðarber eru keypt í boxi skal athuga vel að það sé engin mygla í boxinu. Ef eitt jarðarber sýnir merki up myglu skaltu ekki kaupa boxið. Rannsóknir sýna að þessa myglu má tengja ýmsum heilsufarslegum vandamálum og jafnvel krabbameini. Ávextir og grænmeti sem innihalda mikinn safa geta verið menguð að innan.

Hvernig skal geyma jarðarber

Eins og áður sagði, þá er best að borða jarðarber um leið og þau eru keypt eða týnd á akrinum. Að geyma þau í ísskáp skemmir gæði þeirra.

Jarðarber á að geyma við herbergishita í smá tíma. Anthocyanin sem er efnið er gefur þeim litinn er afar viðkvæmt fyrir hita. Þetta er ástæðan fyrir því að jarðarber verða brún ef þau eru geymd í röngu hitastigi.

Aðeins skal þvo jarðarber þegar þú ætlar að borða þau. Best er að skola af þeim undir rennandi köldu vatni. Alls ekki láta þau liggja í vatni.

Ef þú vilt frosin jarðaber skaltu þvo þau varlega og leyfa þeim að þorna og taka af þeim græna toppinn. Síðan skaltu raða þeim á smjörpappír og frysta. Einnig má setja þau í ílát sem að lokast vel. Þau geymast í 6 mánuði í frysti.

Þýðing: Heilsutorg

Heimildir: care2.com

heilsutorg

SHARE