Jay Z birtir áður óséð myndskeið úr brúðkaupi hans og Beyoncé

Stjörnuparið Jay Z og  Beyoncé hafa alla tíð lagt kapp á að halda einkalífi sínu út af fyrir sig – sem hlýtur að vera ansi strembið oft á tíðum. Parið gekk í það heilaga þann 4.apríl árið 2008 en engar myndir voru birtar úr brúðkaupinu á sínum tíma, aðdáendum þeirra til mikilla ama. Þeir sem svekktir voru geta nú aldeilis hoppað hæð sína af gleði. Parið átti nefnilega brúðkaupsafmæli fyrir viku síðan og birti Jay Z þess vegna örlítið myndskeið úr athöfninni á Instagram.

Sjá einnig: ,,Ófótósjoppuðum“ myndum af Beyoncé lekið á netið

Stutt en ferlega fallegt:

http://instagram.com/p/1LwPsrDMVo/

Sjá einnig: Innlit: Glæsihöll Beyoncé og Jay Z

SHARE