Karamellupoppkorn með sjávarsalti

Þessi dásamlegheit koma frá Eldhússystrum.

Ég ákvað að búa til karamellupoppkorn þar sem slík dásemd fæst varla í Svíþjóð og þegar maður finnur þá kostar það hálfan  handlegg. Ég hugsaði með mér að það gæti ekki verið svo flókið að gera þetta bara sjálf – og viti menn! Það voru auðvitað til tíu þúsund mismunandi uppskriftir á internetinu. Ég notaði þessa hér.

Áður en þið látið vaða í að prófa þessa uppskrift þá vil ég bara vara ykkur við, þetta er gjörsamlega ávanabindandi og fullkomlega fáránlega gott. Búist til á eigin ábyrgð. Ég er kannski og kannski ekki að ljúga þegar ég segist mögulega hafa borðað þetta óvart í morgunmat daginn eftir að ég bjó þetta til…

Hráefni

2 lítrar (u.þ.b.) af poppuðu poppi
230 gr smjör (smjörlíki fyrir vegan uppskrift)
2,5 dl púðursykur
0,8 dl ljós sýróp
2 tsk sjávarsalt (meira ef vill)

Aðferð

Hitið ofninn í 180°c.

Poppið poppið. Setjið smjörið, púðursykurinn, sýrópið og saltið saman í pott á miðlungs hita. Látið suðuna koma upp. Sjóðið í 4 mínútur án þess að hræra í pottinum.

Hellið karamellunni yfir poppið og hrærið vel. Setjið bökunarpappír á ofnskúffu. Setjið poppið á ofnskúffuna og bakið í 30 mínútur. Hrærið 3-4 sinnum í poppinu á meðan það era ð bakast.

Látið kólna (ef þið getið hamið ykkur…)

SHARE