Katy Perry og Rihanna höfnuðu smellinum Pretty Hurts – Myndband

Í nýlegu viðtali við The New York Times, greinir söngkonan og lagahöfundurinn Sia frá því að upphaflega fór lagið Pretty Hurts sem er á nýjustu plötu Beyoncé til Katy Perry. Sia sendi Katy lagið með vefpósti en Katy sá aldrei póstinn. Því næst sendi Sia lagið til umboðsmanns Rihönnu sem hélt laginu í 8 mánuði en hann borgaði aldrei gjaldið til að halda laginu svo það féll upp fyrir.

Þegar Beyoncé heyrði loks lagið var hún ekki lengi að ganga frá samningum við Sia. Sagan endar ekki þarna en þegar Katy Perry heyrði útgáfu Beyonce af laginu sendi hún Sia skilaboð um að hún væri sár yfir því að hún hafi ekki fengið lagið. Sia sendi henni til baka að hún ætti að athuga vefpóstinn sinn.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem söngvarar hafna lagi sem gerir það gott. Söngkonan Nicole Scherzinger laginu We Found Love sem hefur fengið yfir 340 milljón áhorf á YouTube og upphaflega átti Rihanna að syngja We Can´t Stop sem Miley Cyrus tók við.

SHARE