Fyrirsætan Kendall Jenner leikur í nýju myndbandi fyrir The Love Magazine jóladagatalið. Myndbandið af Kendall opnast þegar gluggi 24 er valinn en fyrirsætan er afar kynþokkafull í myndbandinu.
Sjá einnig: Kendall Jenner: 19 ára og á íbúð sem kostar 186 milljónir
Kendall lék einnig í myndbandi fyrir glugga eitt en seinna myndbandið var töluvert meira ögrandi heldur en það fyrra.
Sjá einnig: Kendall Jenner: Stal senunni á kvikmyndahátíðinni í Cannes
Fleiri þekktar fyrirsætur tóku þátt í gerð jóladagatalsins en þar má nefna Miranda Kerr, Gigi Hadid, Bella Hadid, Alessandra Ambrosio og meira segja móðir Kendall, hún Kris Jenner.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.