Khloe sækir um skilnað enn á ný

Khloe Kardashian hefur nú sótt um skilnað við eiginmann sinn Lamar Odom í annað sinn. Hún hafði dregið skilnað sinn til baka eftir að hann tók of stóran skammt í október á síðasta ári, svo hún gæti tekið ákvarðanir fyrir hans hönd í veikindum hans.

Talið er að Khloe hafi ákveðið að gefa hjónabandið alveg upp á bátinn, eftir að Lamar byrjaði að drekka áfengi aftur. Khoe er bæði vonsvikin og sár yfir hegðun Lamar enn og aftur, vegna þess að hún lagði allt í sölurnar til þess að koma honum aftur á fæturnar eftir áfallið.

Sjá einnig: Lamar Odom: „Kanye bjargaði mér“

Heimildarmenn segja þó að Khloe hafi þó aldrei hætt almennilega við skilnaðinn, en hún segist sjálf ekki trúa á skilnað. Hún hafi þó þurft að taka ákvörðun fyrir sína eigin velferð, bæði andlega og líkamlega, en segir aftur á móti að hún hafi staðið við eið sinn við guð um að standa með honum til enda.

Sjá einnig: Er Lamar Odom byrjaður að drekka aftur?

072115-khloe-kardashian-lamar-odom-divorce1-750x522-1437509672

k

Sjá einnig: Khloe segir okkur frá 6 uppáhalds snyrtivörum sínum

kk

 

 

SHARE