Kjóll – Listaverk gert úr 1.400 uppþvottahönskum – Myndir

susiemacmurrayamixtureoffrailties1

Þetta forvitnilega verk eftir bresku listakonuna Susie MacMurray felst í tæplega 2 metra kjól sem búinn er til úr 1400 uppþvottahönskum.  Öllum hönskunum hefur verið snúið á rönguna. Litavalið virðist benda til að um brúðarkjól sé að ræða, sem fær áhorfandann til að íhuga merkingu listaverksins.

Þó að verkið virðist í fyrstu vera skemmtilegur tískufatnaður, þá vekur það mann til umhugsunar þegar maður hefur í huga hvaða efni og form er notað. Með því að notast við gínu þá hefur MacMurray líkt eftir kvenmannslíkama sem er hulinn af uppþvottahönskum. Í fjarska virðist kjólinn fjaðurlegur og léttur, en þegar hann er skoðaður nánar þá tekur maður eftir þunga hans og næstum kæfandi eiginleika.  Tengslin milli kvenlíkamans og vinnunar sem vanalega er ætlast til að konur sinni, fær áhorfandann til að velta fyrir sér félagslegum og menningarlegum viðhorfum.

 

 

susiemacmurrayamixtureoffrailties2

 

susiemacmurrayamixtureoffrailties3

 

susiemacmurrayamixtureoffrailties4

 

Heimasíða Suzanne hér 

SHARE